Erlent

Hægðir valda usla í Noregi

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Ekki er vitað hvort ferðamenn gangi örna sinna á götum úti í Osló.
Ekki er vitað hvort ferðamenn gangi örna sinna á götum úti í Osló. AFP
Einn vinsælasti ferðamannastaður Noregs, Predikunarstóllinn, sem er gríðarstór klettur í botni Lýsufjarðar í Vestur-Noregi hefur átt undir högg að sækja í sumar.

Kletturinn laðar að sér fjölda ferðamanna ár hvert en afar algengt er að ferðamenn gangi örna sinna á svæðinu umhverfis klettinn og veldur sú hegðun starfsmönnum á svæðinu og öðrum ferðamönnum miklum ama.

Um 300 þúsund ferðamenn heimsækja klettinn árlega og engin almenningssalerni eru á svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×