Skoðun

Hæfnimiðað námsmat í stærðfræði

Guðbjörg Pálsdóttir og Guðný Helga Gunnarsdóttir skrifar
Nokkur umræða hefur verið um námsmat við lok grunnskóla. Nemendur sem luku 10. bekk í vor fengu lokaeinkunnir byggðar á mati á hæfni sem er í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla frá 2013. Þar eru sett fram hæfniviðmið fyrir allar námsgreinar og lögð áhersla á að meta þurfi hæfni nemenda á fjölbreyttan hátt.

Við höfum á undanförnum vikum safnað gögnum frá skólum um hvernig þeir hafa staðið að námsmati í stærðfræði í 10. bekk skólaárið 2015-16. Þó úrvinnsla gagnanna sé á frumstigi getum við strax greint að kennarar hafa víða lagt mikla vinnu í að meta hæfni nemenda út frá viðmiðum námskrárinnar.

Þeir hafa lagt fyrir fjölbreytt námsmatsverkefni þar sem nemendum er gert ljóst hvaða hæfni er verið að meta hverju sinni. Þeir hafa jafnframt með leiðsagnarmati gefið nemendum tækifæri til að greina stöðu sína og finna leiðir til að auka hæfni sína. Nemendur hafa því víða fengið skýr viðmið um hvaða hæfni þeir þurfa að sýna til að ná tilteknum hæfniþrepum og hafa getað nýtt þau til að meta styrkleika sína og veikleika. Kennarar eru þannig að prófa sig áfram með nýja hugsun við námsmat þar sem sjónum er beint að mörgum þáttum á fjölbreyttan og markvissan hátt.

Fyrsta skrefið

Kennarar og skólastjórnendur hafa yfirleitt kynnt þessa nýju hugsun um námsmat fyrir nemendum og forráðamönnum þeirra og hvernig þeir hyggjast innleiða breytt námsmat. Skólar eru mislangt komnir í þessu ferli en spennandi er að sjá hve margar ólíkar leiðir hafa þegar verið farnar til þess að svara kröfum námskrárinnar. Í gögnum okkar kemur fram að kennarar eru að takast á við þessar breytingar á námsmati á faglegan hátt. Þó sumir skólar hafi valið þá leið í vor að varpa tölueinkunnum yfir í bókstafi út frá ákveðnum viðmiðum, kemur fram að þeir líta á það sem fyrsta skref í breytingum á námsmati.

Margir nefna að þeir stefni að því að tengja þau matsviðmið sem sett eru fram í námskrá beint við fjölbreytt námsmatsverkefni. Skólarnir hafa því að okkar mati tekist á við þetta verkefni af alvöru og fagmennsku og líta á þessar breytingar sem ákveðið þróunarstarf sem vinna þarf í áföngum.

Markmið rannsóknar okkar er að afla upplýsinga til að skapa betri grundvöll fyrir frekari umræðu og þróun námsmats í stærðfræði hér á landi. Við munum í niðurstöðum okkar lýsa þeim leiðum sem skólar hafa farið við námsmat í stærðfræði í 10. bekk og greina meginlínur og áherslur. Fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar verða kynntar á Menntaviku, árlegri ráðstefnu menntavísindasviðs Háskóla Íslands sem haldin verður 7. október næstkomandi.




Skoðun

Sjá meira


×