Innlent

Hæfasti umsækjandinn tapaði gegn íslenska ríkinu

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra.
Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra. vísir/gva
Íslenska ríkið hefur verið sýknað af ásökunum um að hafa ekki skipað hæfasta umsækjandann í starf framkvæmdastjóra Lánastofnunar íslenskra námsmanna (LÍN). Kristín Egilsdóttir, sem metin var hæfust af stjórn LÍN, höfðaði málið en beið lægri hlut. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur um klukkan tólf.

Samkvæmt dómnum var Illuga heimilt að gefa reynslu á sviði stjórnsýslu og fjárlagagerðar aukið vægi, umfram aðra þætti sem tilgreindir voru í auglýsingu um embættið. Við það hafi Hrafnhildur Ásta verið orðin hæfust umsækjendanna þriggja. 

Var ríkið af þessum sökum sýknað að kröfu Kristínar.

Kristín höfðaði málið eftir að Illugi skipaði Hrafnhildi Ástu Þorvaldsdóttur sem framkvæmdastjóra LÍN í október á síðasta ári. Kristín var metin hæfust af stjórn LÍN lagði til við ráðherra að hún yrði skipuð. Illugi tók hinsvegar ákvörðun byggða á öðrum ótilgreindum forsendum.

Bent hefur verið á fjölskyldutengsl Hrafnhildar en hún er náskyld Davíð Oddssyni, fyrrverandi forsætisráðherra, en Illugi er fyrrverandi aðstoðarmaður hans. Það vakti einnig athygli að þegar Illugi skipaði þrjá einstaklinga í stjórn LÍN sem allir höfðu gegnt trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

Í umsögn stjórnar LÍN sem lögð var fyrir Illuga áður en skipað var í starfið kom fram að þrír umsækjendur hefðu menntun og starfsreynslu sem þarf til að gegna starfi framkvæmdastjóra en efir viðtöl og verkefni sem lögð voru fyrir þremenningana var það mat stjórnarinnar að Kristín væru hæfust þeirra. Hrafnhildur Ásta var ein af þessum þremur sem metnir voru hæfir.

Stjórn sjóðsins gaf hinsvegar reynslu á sviði fjármála og rekstrar aukið vægi umfram aðra þætti að eigin frumkvæði. Það gerði Illugi ekki.

Illugi sagði í samtali við DV í mars að LÍN hefði sent sér þrjú nöfn og það hefði stjórnin ekki gert nema að allir þrír þættu hæfir til að vera skipaðir í stöðuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×