Glamour

H&M opnar 430 nýjar búðir á árinu

Ritstjórn skrifar
Líkt og alþjóð veit þá mun H&M opna minnst tvær verslanir hér á landi á næstu tveimur árum. Innkoma þeirra inn á íslenskan markað er partur af gífurlegri fjölgun verslana hjá sænsku fatakeðjunni. Samkvæmt tilkynningu frá H&M ætla þau sér að opna 430 nýjar búðir árið 2017. Inni í þeirri tölu eru einnig verslanirnar Cos, & Other Stories, Monki og Cheap Monday sem eru í eigu H&M.

Það þýðir að fyrirtækið mun opna meira en eina búð á dag á þessu ári. Þrátt fyrir allar þessar opnanir ætlar verslunin að einbeita sér enn meira að netverslun enda eru sífellt fleiri neytendur sem kjósa að versla í gegnum internetið með hverju árinu. 






×