Glamour

H&M gerir línu úr endurunnum fötum

Ritstjórn skrifar
Sænski fatarisinn hefur síðan 2013 hvatt viðskiptavini sína til þess að safna saman gömlum fötum, í hvaða ástandi sem er, koma með þau í næstu verslun þar sem þeim er safnað saman og í staðinn fá 15% afslátt af næstu kaupum í búðinni.

Fötin eru síðan endurunnin, en þeir segja að um 95% af öllum fatnaði sé hægt að nota aftur á einhvern hátt. Að endurvinna einn bol sparar 2.100 lítra af vatni í framleiðslu.

Þeir hafa nú tekið verkefnið, sem þeir kalla Close The Loop, enn lengra og þann 3. september kom í búðir línan Denim Re-Born.

Í henni má finna gallafatnað sem er 20% unninn úr fatnaði sem viðskiptavinir gáfu í söfnunina. Stefnan er svo að geta gert fatnað sem er 100% endurunninn.

Línuna er hægt að skoða í heild sinni hér, og ættu þeir sem staddir eru í H&M landi ekki að láta þessa línu framhjá sér fara.

Flottur samfestingur úr línunni
Flottur gallajakki fyrir haustið
Hefðum ekkert á móti því að eignast þessar smekkbuxur.
Klassiskar gallabuxur sem ganga við allt
Fylgstu með Glamour á Instagram og á Facebook.






×