Fótbolti

Gylfi Þór vonast til að skora tvö til þrjú mörk gegn Hollandi og Kasakstan

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Tveir markheppnir, Eiður Smári Guðjohnsen og Gylfi Þór Sigurðsson, á æfingu með landsliðinu í dag.
Tveir markheppnir, Eiður Smári Guðjohnsen og Gylfi Þór Sigurðsson, á æfingu með landsliðinu í dag. Vísir/Valli
Karlalandslið Íslands mætir því hollenska í Amsterdam eftir slétta tvo sólarhringa. Gylfi Þór Sigurðsson segir pressuna vera á Hollendingum en hann tók markaskóna sína með til Amsterdam. 

Maður er spenntur fyrir leiknum. Við erum búnir að bíða eftir honum síðan eftir Tékkaleikinn,“ segir Gylfi. Gaman sé að stundin sé að renna upp. Pressan sé öll á Hollendingum sem verði að vinna.

„Þeir eru undir mikllli pressu. Þeir byrjuðu riðilinn ekki mjög vel og eru búnir að skipta um þjálfara og eru að spila á heimavelli á móti minni þjóð. Öll pressan er á þeim og þeir þurfa að spila mjög vel í þessum leik. Það opnar vonandi leikinn fyrir okkur og við getum búið til færi þegar þeir fara að sækja mikið.“

Gylfi lagði upp mark gegn Manchester United um helgina en hefur ekki skorað það sem af er tímabili.

„Ég er búinn að vera að spara mörkin í Englandi fyrir þessa viku þannig að vonandi koma tvö til þrjú mörk í þessum leikjum á móti Hollandi og Kasakstan.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×