Fótbolti

Gylfi Þór: Þurfum ekki mörg færi til þess að skora

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Gylfi Þór í smá aðhlynningu á æfingu íslenska liðsins í Amsterdam í morgun.
Gylfi Þór í smá aðhlynningu á æfingu íslenska liðsins í Amsterdam í morgun. Vísir/Valli
Gylfi Þór Sigurðsson á von á góðum stuðningi á Amsterdam Arena á fimmtudaginn. Hann finnur fyrir þreytu eftir öll hlaupin í sigri Swansea á Manchester United á sunnudaginn en verður klár í slaginn á fimmtudaginn. Hann segir alla pressuna vera á hollenska landsliðsinu.

Gylfi skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri Íslands í fyrri leiknum. Hollendingar hugsa honum því væntnalega þeygjandi þörfina eftir þann leik líkt og knattstpyrnustjóri Manchester United, Hollendingurinn Louis van Gaal. Gylfi lagði upp annað markið í 2-1 sigri á lærisveinum Louis van Gaal á sunnudaginn. Í fyrra skoraði hann einmitt sigurmarkið í fyrsta leik þeirra rauðklæddu undir stjórn hollenska þjálfarans.

„Það er smá þreyta sem er eðlilegt á öðrum degi eftir svona leik. En ég er í fínum málum, smá stirðleiki, en við erum með svo gott sjúkraþjálfarateymi sem hugsar vel um okkur. Ég verð klár á fimmtudaginn,“ segir Gylfi.

Orðnir vanir góðum stuðningi

Von er á þrjú þúsund íslenskum stuðningsmönnum til að keppa við þá 48 þúsund hollensku. Gylfi segir stuðninginn á leikjum okkar manna á útivelli hafa verið frábæran í síðustu undankeppni líkt og þessari.

„Hvert sem við förum hefur alltaf verið mikið af fólki. Stúkan verður full af íslendingum sem er frábært og gott fyrir liðið. Það sýnir hve áhuginn er mikill á landsliðinu. Það er jákvætt og strákrarnrir taka það inn í leikinn.“

Íslenska liðið hefur farið á kostum undanfarin tvö ár. Ef finna ætti tvo verstu leikina væru það tveir síðustu útileikir gegn stórþjóðum. Annars vegar 2-0 tapið í umspili gegn Króötum í Zagreb fyrir HM 2014 og síðan 2-1 tapið gegn Tékklandi í Plzen.

Getum varist í 90 mínútur

„Við höfum farið yfir þessa leiki. Við fórum yfir Króatíuleikinn fyrir riðlakeppnina og hvað fór úrskeiðis þar,“ segir Gylfi. Strákarnir okkar hafi snúið tapinu í útileiknum gegn Tékkum yfir í sigur í heimaleiknum.

„Við spiluðum ekki vel en unnum sem var mjög mikilvægt. Við vitum að Hollendingarnir verða meira með boltann eins og í fyrri leiknum,“ segir Gylfi meðvitaður um að íslenska liðið mun þurfa að verjast á löngu köflum í leiknum.

„Við höfum sýnt að við getum varist í 90 mínútur og þurfum ekki mörg færi til að skora. Ég myndi taka 1-0 á útivelli,“ segir Gylfi sposkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×