Enski boltinn

Gylfi Þór: Hefðum alltaf þegið sjö stig úr þremur leikjum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði mark Swansea í 1-1 jafntefli gegn West Bromwich Albion í gærkvöldi og var valinn maður leiksins fyrir frammistöðu sína.

Markið hans Gylfa Þórs hefði átt að vera sigurmark leiksins en WBA jafnaði metin í uppbótartíma eftir mikinn darraðadans í teignum.

„Þetta var svolítið svekkjandi því við vorum einu marki yfir þegar lítið var eftir. Þetta var svekkjandi, en á móti fannst mér við spila vel á móti þeim,“ sagði Gylfi Þór í viðtali við heimasíðu Swansea eftir leik.

„Við réðum vel við löngu sendingarnar þeirra fram völlinn og sendingarnar inn á teiginn þar til alveg undir lokin. Við erum mjög svekktir með þetta en við þyggjum sjö stig úr síðustu þremur leikjum.“

Sjáðu markið hjá Gylfa Þór:


Gylfi og félagar eru á fínum skriði á nýju ári og eru búnir að fá sjö stig úr síðustu þremur leikjum. „Við erum að spila betur og búa til fleiri færi. Því miður erum við ekki að nýta færin okkar nógu vel. Við áttum skot í stöngina í stöðunni 1-0. Mark þar hefði gengið frá leiknum,“ sagði Gylfi Þór.

„Það jákvæða er að við erum að ná í stig. Við eigum núna framundan nokkra heimaleiki þar sem við getum vonandi safnað fleiri stigum.“

Ítalinn Alberto Paloschi var keyptur til Swansea í janúarglugganum frá Chievo og hann átti stóran þátt í markinu sem Gylfi skoraði í gær.

„Hann virkar góður leikmaður. Hann er ekki stærsti framherjinn í bransanum en hann er tekknískur. Hann stóð sig vel og lítur vel út. Ég hlakka til að spila með honum,“ sagði Gylfi Þór.

Swansea á næst heimaleik gegn Crystal Palace sem fékk Tógómanninn Emmanuel Adebayor til sín fyrir loka félagaskiptagluggans. Gylfi þekkir hann vel frá Tottenham.

„Þegar hann er í stuði er ekki hægt að spila á móti honum. Vonandi höldum við honum niðri og náum í einhver stig,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson.

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×