Enski boltinn

Gylfi skoraði á gamla heimavellinum | Sjáðu markið

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Swansea sem tapaði, 3-2, gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Gylfi Þór, sem spilaði með Tottenham undanfarin tvö tímabil áður en hann gekk aftur í raðir Swansea, skoraði annað mark velska liðsins undir lok leiksins.

Það dugði því miður ekki til fyrir Swansea því Tottenham var 3-1 yfir og vann leikinn sem fyrr segir, 3-2.

Markið hjá Gylfa Þór var nokkuð snoturt, en hann skoraði með viðstöðulausu skoti úr teignum.

Markið má sjá hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×