Enski boltinn

Gylfi orðinn stoð­sendinga­hæstur í Evrópu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mögnuð tölfræði hjá Gylfa.
Mögnuð tölfræði hjá Gylfa.
Gylfi Þór Sigurðsson hefur farið gjörsamlega á kostum í ensku úrvalsdeildinni í vetur og lagði hann upp 11. mark sitt í deildinni í dag. 

Gylfi gaf stoðsendinguna í eina marki Swansea þegar liðið tapaði 2-1 gegn Hull í miklum fallbaráttuslag. 

Cristian Eriksen, leikmaður Tottenham, er í öðru sæti yfir stoðsendingahæstu menn en hann hefur lagt upp tíu. Þetta kemur fram í tölfræðiupplýsingum frá WhoScored.com.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×