Íslenski boltinn

Gylfi og Harpa valin knattspyrnufólk ársins 2014

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Leikmannaval Knattspyrnusambands Íslands hefur valið Gylfa Þór Sigurðsson og Hörpu Þorsteinsdóttur knattspyrnufólk ársins 2014 en þetta er í ellefta skiptið sem að knattspyrnufólk ársins er sérstaklega útnefnt af KSÍ.

Leikmannaval KSÍ er skipað fyrrverandi landsliðsfólki, þjálfurum og forystumönnum í knattspyrnuhreyfingunni. Veitt eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin hjá körlum og konum og hefur KSÍ nú sagt frá valinu fyrir árið 2014.  Hér fyrir neðan má umfjöllun um valið af heimasíðu sambandsins.



Knattspyrnumaður ársins

Gylfi Þór Sigurðsson var sem fyrr einn lykilmanna íslenska landsliðsins í knattspyrnu sem hefur byrjað undankeppni EM frábærlega. 

Gylfi lék 6 landsleiki á árinu og skoraði í þeim fjögur mörk en öll mörkin voru í undankeppni EM.  Hann skoraði gegn Tyrkjum hér á Laugardalsvelli, gegn Lettum ytra og loks tvö mörk í glæstum sigri gegn Hollandi í Laugardalnum.  Hann hefur nú leikið 28 landsleiki og skorað í þeim 9 mörk. 

Gylfi lék með Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en var seldur til Swansea í sumar þar sem hann gegnir lykilhlutverki.  Hann hefur skorað 2 mörk í 16 leikjum í deildinni en hefur gefið flestar stoðsendingar allra í liðinu og er í öðru sæti yfir flestar stoðsendingar allra í ensku úrvalsdeildinni.

2. sæti

Alfreð Finnbogason var markakóngur í hollensku úrvalsdeildinni 2014/2014 en hann skoraði 29 mörk í 32 leikjum.  Hann setti félagsmet hjá félagi sínu Heerenveen með því að skora 53 mörk í efstu deild og það, þrátt fyrir að leika aðeins tvö tímabil með hollenska liðinu. 

Alfreð var svo seldur í sumar til Real Sociedad á Spáni fyrir 7,5 milljón evrur.  Alfreð meiddist rétt áður en spænska deildin hófst en hefur smám saman verið að tryggja sér sæti í liðinu.  Alfreð missti úr nokkuð af landsleikjum vegna meiðsla en hann lék 3 landsleiki á árinu og skoraði 1 mark, í vináttulandsleik gegn Belgum.

3. sæti

Kolbeinn Sigþórsson lék 7 landsleik á árinu og skoraði í þeim 3 mörk.  Landsleikirnir eru því orðnir 27 og mörkin í þeim 16 talsins.  Þrátt fyrir að vera orðaður við brottför frá félagi sínu Ajax þá hefur hann gert nýjan samning við hollenska félagið. 

Kolbeinn varð, ásamt einum öðrum, markahæsti leikmaður Ajax á síðasta tímabili með 10 mörk í 30 leikjum en félagið varð hollenskur meistari. 

Hann var áfram fastamaður í Ajax á nýju tímabili en meiddist fyrir skömmu og verður frá keppni til áramóta.  Kolbeinn er nú orðinn þriðji leikjahæsti Íslendingurinn í Meistaradeild Evrópu frá upphafi, hefur leikið 11 leiki.



Knattspyrnukona ársins

Harpa Þorsteinsdóttir átti frábært keppnistímabil, líkt og síðasta ár.  Hún var í fararbroddi Stjörnustúlkna sem vörðu Íslandsmeistaratitilinn á árinu með glæsibrag og bættu um betur og urðu einnig bikarmeistarar eftir sigur á Selfossi í úrslitaleik. 

Harpa varð markahæst í Pepsi-deild kvenna og skoraði 27 mörk í 18 leikjum.  Hún gerði svo einnig fjögur mörk í bikarkeppninni.  Harpa var einn af fjögurra leikmanna sem lék í öllum 12 landsleikjum Íslands á árinu og varð markahæst, ásamt Dagnýju Brynjarsdóttur, með 7 mörk.



2. sæti

Sara Björk Gunnarsdóttir átti frábært ár með félagi sínu FC Rosengård í Svíþjóð og var fyrirliði liðsins sem hampaði meistaratitlinum í þriðja sinn á fjórum árum.  Liðið féll út fyrir Evrópumeisturum Wolfsburg á síðasta tímabili en hefur nú tryggt sér sæti í 8 liða úrslitum þar sem mótherjarnir verða aftur þýska liðið Wolfsburg. 

Sara tók einnig við fyrirliðabandinu hjá íslenska landsliðinu þar sem hún var sem fyrr í fararbroddi en Ísland hafnaði m.a.  í 3. sæti á Algarve mótinu.  Hún lék í öllum 12 landsleikjum Íslands á árinu og skoraði í þeim 2 mörk.  Hún hefur leikið 78 landsleiki þrátt fyrir að vera einungis 24 ára gömul.



3. sæti

Glódís Perla Viggósdóttir var einn af burðarásum Stjörnunnar sem áttu frábært tímabil, unnu bæði deild og bikar.  Glódís er einungis 19 ára gömul en gegndi engu að síður lykilhlutverki í liði Stjörnunnar. 

Hún mun á næsta tímabili söðla um en hún hefur skrifað undir samning við sænska úrvalsdeildarfélagið Eskilstuna. 

Glódís er orðin fastamaður í íslenska landsliðinu og lék í 11 leikjum á árinu og skoraði þar sitt fyrsta A landsliðsmark.  Hún hefur nú leikið 25 landsleiki og má búast við miklu af þessum framtíðarleikmanni Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×