Enski boltinn

Gylfi og félagar töpuðu fyrir Southampton

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson í leiknum í dag.
Gylfi Þór Sigurðsson í leiknum í dag. vísir/getty
Southampton vann frábæran heimasigur á Swansea, 1-0, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. 

Gylfi Þór var að vana í byrjunarliði Swansea í dag og fékk hann besta færi fyrri hálfleiksins. 

Staðan var 0-0 í hálfleik en það var síðan Shane Long sem skoraði eina mark leiksins tuttugu mínútum fyrir leikslok og tryggði liðinu þrjú stig. 

Southampton er í sjötta sæti deildarinnar með 40 stig en Swansea í því 16. með 27 stig. 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×