Enski boltinn

Gylfi og félagar geta fjarlægst fallsætin með sigri | Myndbönd

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Þrír leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Gylfi Þór Sigurðsson og félagar geta fjarlægt fallsætin enn frekar með sigri á Hull City á KCOM vellinum.

Swansea hefur unnið fimm af síðustu átta leikjum sínum og er komið fimm stigum frá fallsæti.

Liðin í 7. og 8. sæti, Everton og West Brom, eigast við á Goodison Park. Bæði lið töpuðu í síðustu umferð og vilja komast aftur á sigurbraut.

Bournemouth fær West Ham United í heimsókn. Bournemouth hefur ekki unnið leik á árinu og hefur sogast niður í fallbaráttuna.

Hamrarnir eru án sigurs í síðustu þremur leikjum en geta komist upp í 10. sætið með sigri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×