Fótbolti

Gylfi níu sætum frá því að komast í hóp hundrað bestu leikmanna heims

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslenski landsliðsmiðjumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson fékk 44 stig í kjöri Guardian á hundrað bestu knattspyrnumönnum heimsins.

Gylfi endaði í 109. sæti og vantaði þrettán stig til að komast inn á topp hundrað. Síðasti maðurinn í hóp þeirra hundrað bestu var Ousmane Dembélé, leikmaður Borussia Dortmund.

124 knattspyrnuspekingar frá 45 löndum tóku þátt í kjörinu og fulltrúi Íslands var Magnús Már Einarsson, ritstjóri fótbolti.net.

Tíu af þessum 124 spekingum gáfu Gylfa stig þar af fékk hann 73 prósent stiga sinna frá þremur aðilum.

Þar sem atkvæða þess sem gaf hverjum leikmanni hæstu einkunn taldi ekki þá missti Gylfi 20 af 64 atkvæðum sínum á einu bretti.

Cristiano Ronaldo var efstur í kjöri Guardian með 4789 stig, Lionel Messi var annar með 4721 stig og Luis Suarez þriðji með 4455 stig. Ronaldo fékk 63 atkvæði í fyrsta sætið en Messi „aðeins“ 30.

Sjö leikmenn náði því að vera í efsta sæti á lista en hinir eru Antoine Griezmann (efstur á 13 listum), Luis Suarez (12), Gareth Bale (4), Neymar (1) og Riyad Mahrez (1).

Þrír aðrir íslenskir knattspyrnumenn fengu einnig atkvæði. Birkir Bjarnason varð í 139. sæti með 14 stig og þeir Aron Einar Gunnarsson og Ragnar Sigurðsson urðu báðir í 178. sæti.

Það má sjá alla kosninguna sundurliðaða með því að smella hér en ekki kemur þó fram hver á hvaða lista aðeins hvernig stigin skiptust á listunum og á leikmennina.

Listann og umfjöllun um hundrað bestu knattspyrnumenn heims á árinu 2016 er síðan hér.

Aron Einar Gunnarsson og Ragnar Sigurðsson voru jafnir í 178. sæti.Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×