Enski boltinn

Gylfi með mark og stoðsendingu í öðrum heimasigri Swansea í röð | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson kom Swansea City á bragðið í 3-0 sigri á Sunderland á Liberty vellinum í 15. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag.

Þetta var annar heimasigur Swansea í röð en liðið er komið upp úr fallsæti.

Staðan var markalaus í hálfleik en á 51. mínútu fékk Swansea vítaspyrnu. Gylfi fór á punktinn og skoraði af öryggi. Þetta var fimmta mark Gylfa í deildinni í vetur.

Aðeins þremur mínútum síðar jók Fernando Llorente muninn í 2-0 þegar hann skoraði eftir hornspyrnu Gylfa.

Llorente var svo aftur á ferðinni á 80. mínútu þegar hann skoraði sitt annað mark og þriðja mark Swansea. Spænski framherjinn skoraði einnig tvö mörk í síðasta heimaleik velska liðsins, 5-4 sigri á Crystal Palace.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×