Enski boltinn

Gylfi mættur frá Bahama til Everton

Anton Ingi Leifsson skrifar
Gylfi er mættur úthvíldur eftir HM.
Gylfi er mættur úthvíldur eftir HM. vísir/getty
Gylfi Þór Sigurðsson er mættur aftur til æfinga hjá Everton eftir gott frí eftir HM í Rússlandi í sumar.

Gylfi fór í frí fyrir rúmum þremur vikum eftir síðasta leik Íslands gegn Króatíu á HM en Gylfi skellti sér til Bahama.

Þar trúlofaði hann sig þann níunda júlí síðastliðinn og ljóst er að hann kemur úthvíldur til leiks með Everton er deildin hefst eftir þrjár vikur.

Everton hélt í gær til Portúgals þar sem liðið spilar tvo æfingarleiki en Gylfi hefur ekki spilað í búningi Everton síðan í mars vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik gegn Brighton.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×