Enski boltinn

Gylfi lagði upp sigurmark Swansea

Gylfi lagði upp mark annan leikinn í röð
Gylfi lagði upp mark annan leikinn í röð Vísir/Getty
Swansea er með fullt hús stiga eftir tvær umferðir í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta eftir að liðið lagði nýliða Burnley 1-0 á heimavelli.

Gylfi Sigurðsson lék allan leikinn fyrir Swansea og átti sendinguna á Nathan Dyer sem skoraði eina mark leiksins á 23. mínútu.

Gylfi lék vel á miðjunni hjá Swansea og fékk gott færi skömmu áður en Dyer skoraði sem var varið.

Burnley sótti nokkuð er leið á leikinn og var ekki langt frá því að jafna en Swansea hélt út og tryggði sér annan sigur sinn í röð. Burnley er án stiga eftir tvo leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×