Fótbolti

Gylfi kominn með 10 landsliðsmörk | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði sitt tíunda landsliðsmark þegar hann tryggði Íslandi 0-1 sigur á Hollandi á Amsterdam Arena í undankeppni EM 2016 í gær.

Fimm af þessum 10 mörkum Gylfa hafa komið í þessari undankeppni en aðeins fjórir leikmenn hafa skorað fleiri mörk í henni en Swansea-maðurinn.

Öll 10 mörk Gylfa, sem lék sinn 31. landsleik í gær, fyrir landsliðið hafa komið í undankeppnum stórmóta.

Öll mörkin 10 má sjá í spilaranum hér að ofan.

Hann skoraði sitt fyrsta landsliðsmark í 5-3 tapi fyrir Portúgal í undankeppni EM 2012 á Estadio do Dragao 7. október 2011, en það var síðasti leikur landsliðsins undir stjórn Ólafs Jóhannessonar. Það er jafnframt eini tapleikurinn sem Gylfi hefur skorað í en níu síðustu mörk hans fyrir landsliðið hafa komið í sigurleikjum.

Gylfi skoraði fjögur mörk í næstu undankeppni, fyrir HM 2014 í Brasilíu.

Hann byrjaði á því að skora sigurmark Íslands í 1-2 sigri á Albaníu í Tirana með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu.

Gylfi skoraði sömuleiðis beint úr aukaspyrnu í öðrum frábærum útisigri Íslands á Slóveníu. Slóvenar komust yfir í fyrri hálfleik en Gylfi jafnaði metin með mögnuðu aukaspyrnumarki á 55. mínútu. Hann tryggði íslenska liðinu svo sigurinn með öðru glæsimarki 12 mínútum fyrir leikslok.

Gylfi var svo á skotskónum í 2-0 sigri Íslands á Kýpur á Laugardalsvellinum í októberbyrjun 2013.

Gylfi var að vonum kátur eftir að hafa komið Íslandi 2-0 yfir gegn Tyrklandi í september á síðasta ári.vísir/anton
Gylfi hóf þessa undankeppni, fyrir EM 2016 í Frakklandi, á því að skora eitt marka íslenska liðsins í 3-0 sigri á því tyrkneska á Laugardalsvellinum. Hann skoraði sömuleiðis í næsta leik, gegn Lettlandi, sem vannst einnig 3-0.

Gylfi gerði svo bæði mörk Íslands í sigrinum glæsilega á Hollandi á Laugardalsvellinum 13. október 2014, hið fyrra úr vítaspyrnu á 10. mínútu og það seinna með skoti úr teignum þremur mínútum fyrir hálfleik.

Þrjú mörk af þessum 10 landsliðsmörkum Gylfa hafa komið af vítapunktinum en Birkir Bjarnason hefur fiskað allar þrjár vítaspyrnunar sem Gylfi hefur skorað úr.

Þrjú af 10 landsliðsmörkum Gylfa hafa komið af vítapunktinum.vísir/valli
Landsliðsmörk Gylfa Þórs Sigurðssonar:

Portúgal 5-3 Ísland 7. október 2011

(5-3 víti, 94. mínúta)

Albanía 1-2 Ísland 12. október 2012

(1-2, 81.)

Slóvenía 1-2 Ísland 22. mars 2013

(1-1, 55., 1-2, 78.)

Ísland 2-0 Kýpur 10. október 2013

(2-0, 76.)

Ísland 3-0 Tyrkland 9. september 2014

(2-0, 76.)

Lettland 0-3 Ísland 10. október 2014

(0-1, 66.)

Ísland 2-0 Holland 13. október 2014

(1-0 víti, 10., 2-0, 42.)

Holland 0-1 Ísland 3. september 2015

(0-1 víti, 51.)


Tengdar fréttir

Jóhann Berg: Gaman að vera liðið á toppnum

Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í íslenska landsliðinu í fótbolta verja toppsæti A-riðilsins í undankeppni EM 2016 þegar sjöunda umferð riðilsins fer fram á morgun.

Strákarnir sigruðu Golíat

Með aðdáunarverðri elju, baráttu, skipulagi og gleði tókst Davíð að sigra Golíat – og það í annað sinn.

Jón Daði: Fékk gæsahúð yfir þjóðsöngnum

Jón Daði Böðvarsson var hrærður þegar blaðamaður Vísis hitti á hann að leik loknum í kvöld en hann sagði það mikil forréttindi að fá að spila með þessu liði.

Jafntefli gegn Kasakstan tryggir sæti á lokakeppni EM

Íslenska landsliðið þarf þrjú stig úr síðustu þremur leikjum sínum í undankeppni EM til þess að gulltryggja sætið á lokakeppni mótsins sem fer fram í Frakklandi næsta sumar.

Lars: Það er svo auðvelt að vinna með þessum strákum

Lars Lagerbäck, þjálfari íslenska landsliðsins, var vissulega brosmildur eftir sigurinn á Hollandi í undankeppni EM í kvöld en þessi reyndi Svíi tók stærsta einum sigri Íslands frá upphafi á fótboltavellinum samt með sínu þjóðþekkta jafnaðargeði.

Fullt hús stiga á móti einni bestu knattspyrnuþjóð heims

Gylfi Þór Sigurðsson tryggði Íslandi sögulegan 1-0 sigur á Hollandi á Amsterdam Arena í gærkvöldi. Íslendingar geta farið að bóka ferðina til Frakklands næsta sumar og þau sem sungu allan tímann í stúkunni í eru farin að dreyma um að upplifa svona stundir aftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×