Enski boltinn

Gylfi kominn á blað fyrir Swansea

Anton Ingi Leifsson skrifar
Vísir/swanseacity.co.uk
Gylfi Þór Sigurðsson er kominn á blað fyrir Swansea, en hann skoraði tvö mörk í æfingarleik gegn Plymouth í dag.

Gylfi kom inná á 66. mínútu í stöðunni 1-0 fyrir Swansea. Hann lagði upp annað markið þremur mínútum síðar og skoraði svo sjálfur á 72. mínútu. Sannarlega frábær byrjun hjá okkar manni.

Gylfi var þó ekki hættur, en hann bætti við öðru marki sínu og fjórða marki Swansea í uppbótartíma þegar hann skoraði frábært mark úr aukaspyrnu og kórónaði því góða innkomu sína.

Gylfi gekki eins og flestir vita í raðir Swansea í vikunni og lofar þessa byrjun góðu hjá Gylfa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×