Enski boltinn

Gylfi er ekki bara að bjarga Swansea frá falli heldur líka ferðamannabransanum í borginni

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson reynir að halda Swansea í úrvalsdeildinni sem er gott fyrir borgina.
Gylfi Þór Sigurðsson reynir að halda Swansea í úrvalsdeildinni sem er gott fyrir borgina. vísir/getty
Aðra leiktíðina í röð er Gylfi Þór Sigurðsson búinn að setja Swansea-liðið á bakið er hann reynir að bjarga því frá falli. Hann er búinn að skora átta mörk og gefa níu stoðsendingar á tímabilinu og þannig koma með beinum hætti að 17 af 32 mörkum liðsins eða ríflega helmingi markanna sem það er búið að skora.

Swansea er sem stendur í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 24 stig, tveimur stigum frá öruggu sæti en spilamennska liðsins hefur stórbatnað eftir komu Paul Clements sem knattspyrnustjóra og hann nýtur góðs af því að vera með einn besta leikmann deildarinnar innan sinna raða.

Það er ekki bara mikilvægt fyrir Swansea að halda sér uppi því augljóslega vill ekkert lið falla heldur sýnir könnun um ferðamálabransann í Bretlandi að þar í borg er gríðarlega mikilvægt fyrir borgina Swansea að vera með lið í ensku úrvalsdeildinni.

Gylfi Þór skorar og leggur upp fyrir ferðamannabransann.vísir/getty
Aðdráttaraflið mikið

Velska fréttasíðan South Wales Evening Post fjallar um málið en þar segir að leikir með Swansea í ensku úrvalsdeildinni eru eitt helsta aðdráttarafl borgarinnar. Hver áhorfandi á leik með Swansea eyðir að meðaltali 855 pundum þegar hann heimsækir borgina eða tæplega 115 þúsund krónum.

Könnunin leiðir í ljós að tveir af hverjum fimm ferðamönnum sem heimsækja Bretland fara að sjá einhvern íþróttaviðburð og í 73 prósent tilvika er um fótbolta að ræða.

Að vera með Swansea í ensku úrvalsdeildinni er ómetanlegt að sögn Matthew Bound, fyrrverandi leikmanns liðsins, sem nú starfar í ferðamannabransanum. „Áhuginn sem hann hefur skapað út um allan heim á borginni er ótrúlegur. Maður ræðir við ferðamenn og það vita allir allt um Swansea City. Liðið er búið að koma borginni á kortið,“ segir Bound.

Þingmaðurinn Robert Francis-Davies bendir á að Wales er eina velska borgin með lið í ensku úrvalsdeildinni og því er eðlilegt að þeir sem heimsækja landið kjósi að fara til Swansea þar sem lið á borð við Manchester United, Liverpool og Arsenal mæti á Liberty-völlinn á hverri leiktíð.

„Þegar þessir erlendu ferðamenn eru hér eyða þeir peningum á hótelunum okkar, á veitingastöðum, í búðum og á barnum. Þetta allt saman skapar störf sem styrkir enn frekar stoðir ferðamannaiðnaðarins. Hann er nú þegar að velta 400 milljónum punda,“ segir Robert Francis-Davies.


Tengdar fréttir

Gylfi deilir efsta sætinu yfir flestar stoðsendingar

Stoðsending Gylfa gegn Chelsea í gær þýðir að hann deilir efsta sæti yfir flestar stoðsendingar á tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni en Gylfi hefur komið að helming marka Swansea á leiktíðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×