Innlent

Gylfi endurkjörinn forseti ASÍ

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sigurður, Gylfi og Ólafía.
Sigurður, Gylfi og Ólafía.
Gylfi Arnbjörnsson var endurkjörinn forseti Alþýðusambandsins á þingi sambandsins í dag. Gylfi hlaut 74,5% eða 201 atkvæði en Ragnar Þór Ingólfsson 69 atkvæði eða 25,5%. Atkvæði greiddu 275 og voru 270 atkvæði gild en 5 skiluðu auðu.

Ragnar Þór bauð sig einnig fram gegn Gylfa fyrir tveimur árum. Þá fékk Gylfi um 69% atkvæða en Ragnar um 31%. Gylfi var fyrst kjörinn forseti ASÍ árið 2008 og hann er því að hefja fjórða kjörtímabil sitt í embætti forseta.

Þá voru Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR, og Sigurður Bessason, formaður Eflingar, kjörin nýir varaforsetar ASÍ. Var lögum sambandsins breytt á þann veg að í stað eins varaforseta verða þeir nú tveir.

Ekki bárust nein mótframboð og voru þau því sjálfkjörin. Bæði héldu kröftugar ræður þar sem þau brýndu félagsmenn til samstöðu, ábyrgðar og tala einum rómi í stórum málum. Var góður rómur gerður að málflutningi nýju varaforsetanna að því er segir í frétt á heimasíðu ASÍ.

Ný miðstjórn ASÍ var einnig kjörin til tveggja ára á þinginu. Hún er þannig skipuð:

LÍV Guðbrandur Einarsson, VS                                                  

LÍV Ingibjörg Ósk Birgisdóttir, VR                                            

LÍV Eiður Stefánsson, FVSA

LÍV Benoný Valur Jakobsson,VR

SGS Sverrir Albertsson, Afl starfsgreinafélag                             

SGS Björn Snæbjörnsson, Eining-Iðja                 

SGS Sigurrós Kristinsdóttir, Efling stéttarfélag

SGS Signý Jóhannesdóttir, Stéttarfélag Vesturlands

RSÍ Kristján Snæbjarnarson, FRV                                              

Samiðn  Hilmar Harðarson, FIT          

SSÍ Sævar Gunnarsson, Sjómannafélag Grindavíkur     

Bein aðild Guðmundur Ragnarsson, VM                                              

Varamenn í miðstjórn

LÍV Kristín M. Björnsdóttir, VR

LÍV Kristjana Þorbjörg Jónsdóttir, VR                                       

LÍV Gils Einarsson, VMS

LÍV Bjarni Þór Sigurðsson,VR

LÍV Hjörtur Geirmundsson, Verslunarmannafég Skagafjarðar

SGS Kolbeinn Gunnarsson, Verkalýðsfélagið Hlíf

SGS Finnbogi Sveinbjörnsson, Verkalýðsfélag Vestfirðinga

SGS Halldóra Sveinsdóttir, Báran - stéttarfélag

SGS Fanney Friðriksdóttir, Efling stéttarfélag

SGS Magnús S. Magnússon, Verkalýðs- og sjómannafélagi Sandgerðis

RSÍ Jens Heiðar Ragnarsson, FÍR                       

Samiðn Finnbjörn A. Hermannsson, Byggiðn                                              

SSÍ Valmundur Valmundarson, Sjómannafélagið Jötun

Bein aðild Georg Páll Skúlason, FBM

Bein aðild Lilja Sæmundsdóttir, FHS


Tengdar fréttir

Tveir bjóða sig fram til forseta

Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, hefur fengið mótframboð í embætti forseta, á þingi ASÍ. Það er Ragnar Þór Ingólfsson, VR, sem bíður sig fram gegn Gylfa.

Sömu mistök og gerð voru fyrir hrunið

Horfur í íslensku efnahagslífi eru bjartari en þær hafa verið mjög lengi að mati hagdeildar ASÍ. Stjórnvöld séu þó að gera sömu mistökin og gerð voru fyrir hrun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×