Íslenski boltinn

Gylfi ekki með gegn Eistlandi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson verður ekki með íslenska landsliðinu er það mætir Eistlandi í vináttulandsleik ytra á morgun.

Eftir því sem kemur fram á heimasíðu KSÍ fékk Gylfi Þór högg í 3-0 sigrinum á Kasakstan á laugardaginn og tekur því ekki þátt í verkefninu í Eistlandi.

Aron Einar Gunnarsson og Eiður Smári Guðjohnsen verða heldur ekki með í leiknum en inn í þeirra stað hafa þeir Ólafur Ingi Skúlason og Rúnar Már Sigurjónsson verið kallaðir inn í íslenska landsliðshópinn.

Líklegt er að þeir sem spiluðu lítið í Kasakstan fái stærra hlutverk í leiknum gegn Eistlandi á morgun. Leikurinn hefst klukkan 16.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×