Enski boltinn

Gylfi búinn að hlaupa lengra en frá Reykjavík til Egilsstaða

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson. Vísir/Getty
Það hafa bara þrír leikmenn í ensku úrvalsdeildinni hlaupið meira en Gylfi Þór Sigurðsson síðan í ágúst 2015.

BBC fjallar ítarlega um N'Golo Kante í skemmtilegri úttekt þar sem er farið yfir feril og sögu þessa snjalla leikmanns sem er á góðri leið með að vinna enska meistaratitilinn annað árið í röð með sitthvoru liðinu.

N'Golo Kante varð meistari með Leicester City í fyrra og var síðan keyptur í sumar til Chelsea sem hefur yfirburðarforystu á toppi deildarinnar þegar níu umferðir eru eftir.

N'Golo Kante er vinnusamur miðjumaður sem fær mikið lof fyrir dugnað sinn á miðjunni en hann nær þó ekki tölum íslenska landsliðsmannsins.

Í samantekt BBC kemur fram að Gylfi er búinn að hlaupa meira en Kante frá því að 2015/16 tímabilið hófst sem var það fyrsta hjá Kante í ensku úrvalsdeildinni.

Gylfi Þór Sigurðsson hefur spilað 65 leiki í ensku úrvalsdeildinni undanfarin tvö tímabil og í þeim hefur hann skorað 19 mörk og gefið 13 stoðsendingar.

Gylfi var hvíldur í síðustu tveimur leikjum síðasta tímabils en annars hefur hann ekki misst af leik og oftast spilað 90 mínútur.

Það er gaman að sjá að mest skapandi leikmaður Swansea-liðsins og sá sem hefur nánast séð til þess að liðið er ennþá í ensku úrvalsdeildinni er sá maður liðsins sem hleypur mest.

Gylfi hefur alls hlaupið 705,1 km í þessum 65 leikjum eða 10,8 km að meðaltali í leik. Þegar við setjum þessa vegalengd í eitthvert samhengi þá væri hann kominn lengra en til Egilsstaða ef hann hefði lagt upp frá Reykjavík.

Vegalengdin á milli Egilsstaða og Reykjavíkur, ef farið er um Norðurland, er 654 kílómetrar, en ef ekið er um Suðurland, er vegalengdin 698 kílómetrar.  Fyrir þá sem vilja velta vegalengdum á Íslandi meira fyrir sér ættu að skoða þessa síðu.

Þessir hafa hlaupið mest í ensku úrvalsdeildinni síðan í ágúst 2015:

Craig Dawson, West Brom - 730,4 km

Darren Fletcher, West Brom - 723,1 km

Christian Eriksen, Tottenham - 718,4 km

Gylfi Sigurdsson, Swansea City - 705,1 km

N'Golo Kante, Leicester og Chelsea - 701,8 km




Fleiri fréttir

Sjá meira


×