Fótbolti

Gylfi: Verðum að nýta þeirra veikleika

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson átti stórleik gegn Lettlandi á laugardag og skoraði glæsilegt mark sem kom Íslandi 2-0 yfir. En það dugði ekki til. Lettarnir komu til baka í seinni hálfleik og tryggðu sér 2-2 jafntefli.

Íslenska landsliðið, sem er nú þegar öruggt með sæti sitt á EM, er nú komið hingað til Konya í Tyrklandi þar sem liðið mætir heimamönnum í dag. Tyrkir þurfa stig til að tryggja sér þriðja sætið í riðlinum og möguleika á að komast á EM í Frakklandi.

„Það er aldrei auðvelt að koma til Tyrklands. Þetta er gryfja og það heyrist vel í stuðningsmönnunum. En markmiðið okkar fyrir þessa tvo leiki var að ná tveimur sigrum. Það var svekkjandi að missa leikinn gegn Lettlandi niður í jafntefli en einbeiting okkar er nú öll á því að vinna leikinn og riðilinn.“

Gylfi segir að þjálfararnir hafi ekki varið miklum tíma í að fara yfir það sem miður fór í leiknum á laugardaginn.

„Við vildum koma okkur sem fyrst til Tyrklands og við höfum frekar verið að skoða Tyrkina og hvernig þeir spila. Við vitum að við þurfum að spila betri varnarleik en gegn Lettum og fara aftur til þess sem við höfum verið að gera síðustu tvö ár. Þá verðum við í fínum málum.“

Gylfi var ekki sáttur eftir jafnteflið gegn Lettum.vísir/anton brink
Spila öðruvísi fótbolta

Þekktasti leikmaður Tyrklands er Arda Turan en Gylfi segir að það séu fleiri öflugir leikmenn í liðinu. „Þeir eru með mjög góða leikmenn, sérstaklega í kringum miðjuna. Þetta eru teknískir leikmenn og mjög vel spilandi. Fram á við eru þeir mjög góðir en þegar þeir tapa boltanum eru þeir með veikleika sem við getum vonandi nýtt okkur.“

Ísland vann Tyrkland, 3-0, í fyrsta leik undankeppninnar en síðan þá hefur mikið breyst. Tyrkneska liðið hefur ekki tapað í sjö leikjum í röð og þó nokkrar mannabreytingar hafa verið í leikmannahópi liðsins.

„Ég held að sami kjarninn sé samt sem áður til staðar í liðinu. Þeir eru þó að spila öðruvísi fótbolta og þess vegna verður leikurinn ólíkur þeim sem fór fram heima. En við vitum að þetta verður mjög erfitt og vonandi komum við héðan með þrjú stig.“

Hann segir að það yrði mikið afrek fyrir íslenska liðið að vinna leikinn og þar með tryggja sér sigur í riðlinum.

„Það væri frábært og mikill heiður. Það sýnir hversu vel við höfum spilað í öllum riðlinum. Þetta er í okkar höndum og ef við vinnum leikinn þá vinnum við riðilinn. Það var markmið okkar frá fyrsta degi og nú er tækifærið okkar, sem er frábært.“


Tengdar fréttir

Alfreð: Ég gerði ekkert rangt

Landsliðsframherjinn Alfreð Finnbogason náði heldur betur að kveikja í stuðningsmönnum tyrkneska landsliðsins áður en hann hélt til Tyrklands.

Jóhann Berg: Forréttindi að byrja

Jóhann Berg Guðmundsson segir að það sé allt of langt síðan að hann skoraði fyrir íslenska landsliðið. Næsta mark hljóti að koma gegn Tyrkjum í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×