Enski boltinn

Gylfi: Þurfum ekki lengur greiða frá öðrum liðum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson. Vísir/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson segir að það sé allt önnur og betri stemning í leikmannahópi Swansea eftir að Paul Clement tók við sem knattspyrnustjóri liðsins.

Framan af vetri var Swansea í miklu basli og ekki útlit fyrir annað en að liðið myndi falla í ensku B-deildina. En síðan í byrjun árs hefur Swansea tvöfaldað stigafjöldann sinn og er í fimmtánda sæti deildarinnar, fimm stigum frá fallsæti.

Um helgina fá Gylfi Þór og félagar það erfiða verkefni að spila við Chelsea á útivelli. Swansea spilaði þó vel gegn bæði Liverpool og Manchester City á útivelli og Antonio Conte, stjóri Chelsea, hefur varað við því að svanirnir verði auðveld bráð fyrir hans menn.

Eftir leikinn gegn Chelsea taka við leikir sem munu hafa mikið um framhaldið að segja fyrir Swansea. Liðið spilar þá gegn Burnley, Hull, Bournemouth og Middlesbrough.

„Markmiðið er að ná 40 stigum eins fljótt og mögulegt er og það breytist ekki þó svo að við séum fjórum eða fimm stigum frá fallsæti eða ekki,“ sagði Gylfi í samtali við South Wales Evening Post. Swansea er nú með 24 stig.

Gylfi Þór Sigurðsson fagnar marki í leik með Swansea.Vísir/Getty
„Það sem mestu máli skiptir er að þetta er í okkar eigin höndum. Við þurfum ekki lengur greiða frá öðrum liðum. Næstu 5-6 leikir verða virkilega mikilvægir og þeir leikir munu líklega ráða örlögum okkar þetta tímabilið. Við verðum að halda okkur á jörðinni og sinna okkar vinnu áfram.“

Gylfi segir að leikmenn liðsins séu allir fullvissir um að liðið geti haldið sæti sínu í deildinni og hann hrósaði stjóranum Paul Clement sem tók við Swansea í upphafi árs.

„Hann hefur komið góðu skipulagi á varnarleikinn okkar og sjálfstraustið hefur aukist með fleiri sigrum. Mörkin koma núna úr öllum áttum og Alfie [Mawson] hefur verið að skora reglulega.“

„Við förum með fullt sjálfstraust í leikinn gegn Chelsea, rétt eins og að við gerðum þegar við spiluðum á Anfield og Etihad. Það er erfitt fyrir önnur lið að brjóta okkur niður.“


Tengdar fréttir

Ruud Gullit ánægður með Gylfa og félaga í Swansea

Hollenska knattspyrnugoðsögnin Ruud Gullit og gamla enska varnartröllið Martin Keown fóru yfir leik Swansea City í Match of the Day 3 þættinum á BBC en Gylfi Þór Sigurðsson og félagar hafa fengið tólf stig í síðustu sex leikjum sínum og unnu Englandsmeistara Leicester City sannfærandi um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×