Fótbolti

Gylfi: Mitt besta ár

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gylfi fagnar einu af 14 mörkum sínum í ensku úrvalsdeildinni á árinu 2016.
Gylfi fagnar einu af 14 mörkum sínum í ensku úrvalsdeildinni á árinu 2016. vísir/getty
Gylfi Þór Sigurðsson, Íþróttamaður ársins 2016, segir að árið sem nú er senn á enda sé hans besta á ferlinum.

Gylfi var í stóru hlutverki, bæði hjá sínu félagsliði, Swansea City, og íslenska landsliðinu sem fór alla leið í 8-liða úrslit á EM í Frakklandi í sumar.

„Persónulega er þetta búið að vera frábært ár,“ sagði Gylfi í samtali við Hauk Harðarson og Eddu Sif Pálsdóttur í beinni útsendingu á RÚV eftir að greint var frá niðurstöðu kjörsins á Íþróttamanni ársins.

„Gengi Swansea hefur ekki verið upp á marga fiska en fyrir mig persónulega hefur þetta verið gott ár. EM í Frakklandi stendur upp úr og það er eitthvað sem maður á aldrei eftir að gleyma. Þetta var mjög gott ár og vonandi eru bjartir tímar framundan,“ sagði Gylfi.

Landsliðsmaðurinn var einnig valinn Íþróttamaður ársins 2013. En hvaða þýðingu hafa þessi verðlaun fyrir hann?

„Þetta er mikill heiður og ég er mjög stoltur af sterku og góðu íþróttaári fyrir Ísland. Ég verð að viðurkenna að það er svolítið sætara að vinna þetta núna í annað sinn,“ sagði Gylfi sem spilaði hverju einustu mínútu á EM í Frakklandi þar sem íslenska liðið sló eftirminnilega í gegn.

„Þetta var frábært og það sem mestu skipti er að liðinu gekk vel. Við fórum alla leið í 8-liða úrslit, sem var eitthvað sem mann þorði kannski ekki að dreyma um,“ sagði Gylfi.

Hann viðurkennir að það hafi verið dálítið erfitt að koma aftur til Swansea eftir EM-ævintýrið.

„Það er ekkert auðvelt að fara úr 8-liða úrslitum á EM í botnbaráttu á Englandi en svona er þetta stundum. Þetta hefur verið erfitt ár, í lok síðasta tímabils og byrjun þessa. En vonandi fer okkur að ganga betur og við höldum okkur í deildinni sem er mikilvægt fyrir okkur og fólkið í Swansea,“ sagði Gylfi.

En hver er næstu skref hans á ferlinum?

„Halda okkur í deildinni, það skiptir mestu máli eins og er. Við verðum að vinna einhverja leiki og safna sem flestum stigum. Persónulega er ég á góðum stað á mínum ferli og er vonandi að nálgast hátind hans. Næstu 2-3 ár verð ég vonandi í úrvalsdeildinni eða í sterkum deildum annars staðar,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson Íþróttamaður ársins 2016.


Tengdar fréttir

Gylfi er Íþróttamaður ársins 2016

Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson var í kvöld kjörinn Íþróttamaður ársins 2016 en niðurstöður úr kosningu Samtaka íþróttafréttamanna voru tilkynntar við hátíðlega athöfn í Silfurbergi í Hörpu.

Karlalandsliðið í fótbolta lið ársins

Karlalandsliðið í fótbolta var kjörið lið ársins 2016 af Samtökum íþróttafréttamanna en kjörið var tilkynnt í kvöld við hátíðlega athöfn í Silfurbergi í Hörpu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×