Fótbolti

Gylfi: Fullkomið að fá Englendingana

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson fagnar með liðsfélögunum í leikslok.
Gylfi Þór Sigurðsson fagnar með liðsfélögunum í leikslok. Vísir/EPA
Gylfi Þór Sigurðsson var í skýjunum eins og aðrir eftir 2-1 sigur á Austurríki á Stade e France í kvöld þar sem íslenska liðið tryggði sér annað sætið í riðlinum og leik á móti Englandi í sextán liða úrslitunum.

„Mér líður frábærlega en ég er ekkert smá þreyttur. Þetta er þess virði. Þessi stund með stuðningsmönnunum eftir leikinn er eitthvað sem maður mun aldrei gleyma," sagði Gylfi Þór Sigurðsson í samtali við Pétur Marteinsson í útsendingu Símans.

„Þetta var mjög erfiður leikur en við vissum það. Það var klaufaskapur að fá á okkur þetta mark í síðari hálfleik en við vörðumst ágætlega," sagði Gylfi.

„Við viljum spila betri fótbolta og það á vonandi eftir að koma í keppninni. Við spiluðum nokkrum sinnum mjög vel og sérstaklega þegar Jói átti skot í slána. Við náðum þá nokkrum sendingum og spiluðum okkur í gegnum vörnina hjá þeim en við þurfum að vera aðeins kaldari og þora að spila boltanum," sagði Gylfi.

„Þegar það er svona mikið undir þá vilja menn ekki gera mistök. Við erum komnir áfram og það er það sem skiptir máli," sagði Gylfi.

„Skiptingarnar virkuðu. Arnór kom inn og skoraði. Hann er mjög frískur og snöggur leikmaður og það var kannski það sem við þurftum. Theódór Elmar kom líka inná og gerði mjög vel. Sverrir var líka frábær í miðverðinum þegar hann kom inná og skallaði fjóra eða fimm bolta í burtu. Skiptingarnar virkuðu því mjög vel og allir sem eru á bekknum eru algjörlega klárir í að koma inná," sagði Gylfi.

Næst á dagskrá er leikur á móti Englandi í sextán liða úrslitunum.

„Það var frábært að ná fyrsta sigrinum. Það er bara fullkomið að fá Englendingana. Mér lýst mjög vel að fá þá. Við vitum að þeir eru með hörkulið, mjög góða unga leikmenn og svo reynslubolta inn á milli," sagði Gylfi.

„Ég myndi halda að öll pressan væri á þeim. Það yrði mikið skrifað í enskum blöðunum ef að þeir myndu detta út á móti okkur. Við viljum ekkert fara heim því þetta hafa verið skemmtilegustu vikur lífs okkar. Við viljum alls ekki að þetta endi," sagði Gylfi að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×