Enski boltinn

Gylfi: Arsenal-markið var líklega betra

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Gylfi að spyrna í boltann
Gylfi að spyrna í boltann vísir/getty
„Þetta var ekki fallegasti leikurinn á að horfa í seinni hálfleik. Við vorum mun betri í fyrri hálfleik og hefðum átt að skora annað mark og klára leikinn,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson við fréttaritara Swansea eftir að hafa tryggt liði sínu 1-0 sigur á Aston Villa í gær.

„Við fengum nokkur hálffæri í seinni hálfleik sem við hefðum átt að nýta til að klára leikinn en við vörðumst vel og (Lukasz) Fabianski varði frábærlega undir lokin,“ sagði Gylfi sem skoraði sigumarkið beint úr aukaspyrnu.

Þetta er annað mark Gylfa beint úr aukaspyrnu á leiktíðinni fyrir Swansea en hann segist ekki ákveða sig áður hvert skuli spyrna heldur les aðstæður áður en hann lætur vaða.

„Ég horfi alltaf á leikmanninn og les í stöðuna. Ég held að (Wilfried) Bony hafi verið við vegginn og blindað markverðinum sýn. Ég tók sénsinn á að hann myndi stíga í átt að nærstönginni. Ég veit ekki hvort hann gerði það en hann náði að minnsta kosti ekki boltanum.

„Arsenal-markið var líklega betra. Það var lengra frá og ég naut þess betur,“ sagði Gylfi aðspurður hvort aukaspyrnumarkið hans á leiktíðinni væri betra.

Swansea hefur nú unnið tvo leiki í röð og er í efri hluta deildarinnar með 28 stig í 18 leikjum.

„Tveir 1-0 sigrar í röð og vonandi náum við í þrjú sig í næsta leik. Það er gott að ná í þrjú stig og þó við höfum ekki leikið okkar besta leik í seinni hálfleik þá náðum við að halda hreinu og landa stigunum.

„Ef við horfum á leikinn gegn Tottenham þá vorum við mun betri þar en töpuðum. Stundum snýst þetta bara um að sækja stigin þrjú en ekki hvernig liðið leikur,“ sagði Gylfi sem verður væntanlega í liði Swansea sem mætir Liverpool á mánudaginn í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport 2.

„Það væri frábært að ná í þrjú stig aftur þá. Það verður erfiður leikur. Þeir eru leika betur en í byrjun tímabils og Anfield er erfiður völlur heim að sækja en vonandi náum við í þrjú stig og komum okkur í góða stöðu.“

Myndband af viðtalinu við Gylfa má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×