Fótbolti

Gylfi! Gylfi! Gylfi! Já! | Sjáðu Gumma Ben trompast af gleði

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gummi Ben fagnar eftir að Gylfi kom Íslandi yfir gegn Ungverjalandi.
Gummi Ben fagnar eftir að Gylfi kom Íslandi yfir gegn Ungverjalandi. mynd/skjáskot
Guðmundur Benediktsson hefur lýst leikjum Íslands á EM í Frakklandi á sinn einstaka hátt.

Gummi var á Stade Vélodrome í gær þegar Íslendingar og Ungverjar gerðu 1-1 jafntefli.

Gylfi Þór Sigurðsson kom Íslandi yfir með marki úr vítaspyrnu á 40. mínútu og eins og sjá má og heyra á myndbandinu hér að neðan var Gummi hæstánægður með  gang mála.

Mark Gylfa dugði Íslendingum reyndar ekki til sigurs því Ungverjar jöfnuðu tveimur mínútum fyrir leikslok þegar Birkir Már Sævarsson varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið mark.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×