Í meðfylgjandi myndasafni má sjá frumsýningu á tveimur glænýjum sumar og haustlínum frá Gyðju sem eru komnar í verslanir.
Um er að ræða fylgihlutalínu frá Gyðju Collection og einnig glænýtt skómerki frá fyrirtækinu sem ber nafnið Lilja Collection.
Hið nýja merki Lilja Collection er fremur hröð skólína fyrir tísku elskhugann sem fylgir straumum og stefnum í tískuheiminum og er að auki umhugað um gæði. Gyðja Collection er rétt eins og áður flaggskipslína fyrirtækisins og býður uppá fylgihluti fyrir elegant konur sem eru óhræddar við að sýna sjálfstæði og glæsileika. Í fylgihlutunum frá Gyðju er að finna m.a. íslenska umhverfisvæna roðið.
Skórnir frá Lilju Collection eru meira í ætt við götutískuna sem er svolítið gróf og rokkuð á meðan vörurnar frá Gyðju Collection eru töfrandi, elegant og í tengingu við íslensku náttúruna. Í báðum línunum er að finna hágæða leður og eru þær handunnar í Tyrklandi.
„Okkur langaði að bjóða uppá þetta nýja merki af því við höfum fundið fyrir aukinni eftirspurn og fengið óskir um að gera einnig grófari skó sem eru meira útí götustíla frá þeim sem vilja geta gengið í fylgihlutunum okkar daglega. Það er líka fátt dásamlegra og skemmtilegra en að fá tækifæri til að hanna fjölbreyttar týpur af skóm og sjá þær fæðast einni af annari. Stefnan er að allar konur geti fundið sinn stíl innan merkja okkar." Segir Sigrún Lilja um Lilju Collection
Gyðja Collection sem er okkar flaggskipslína er og mun ávalt vera mjög elegant, einkar glæsileg, fínleg og svolítið spari. Ég er svo afar þakklát öllum þeim yndislegu manneskjum sem styðja við vörurnar okkar og merki, því það er þetta frábæra fólk sem gefur mér og fyrirtækinu stöðugan kraft til að halda áfram að hanna og bjóða uppá nýjar vörur. Línurnar okkar verða kynntar víða og verðum við á ferð og flugi um landið á næstu dögum þar sem við munum heimsækja verslanirnar sem eru með fylgihlutina í sölu og vera þar með smá uppákomur. Við byrjum í Reykjavík í hönnunarverslunni Kraum fimmtudaginn 5.júlí, verðum svo í Póley í Vestmannaeyjum á föstudeginum og í Mössubúð á Akureyri á laugardeginum svo endum við í Lindinni á Selfossi fimmtudaginn 12.júlí. Við hvetjum áhugasama til að fylgjast með okkur á facebook," Segir Sigrún Lilja
Þessar glænýju línur frá Gyðju eru fáanlegar í verslunum Kraum, í Póley Vestmannaeyjum, Mössubúð Akureyri og Lindinni á Selfossi.
Einnig má nálgast þær í vefverslun fyrirtækisins hér: www.gydja.is
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Gallabuxnaefnið verður ríkjandi í sumartískunni aftur í ár. Gallajakkar, gallabuxur, gallaskyrtur, gallasamfestingar og gallastuttbuxur; öllu þessu má nú klæðast saman án þess að notkun gallaefnisins ...
Meira
Hönnuðir heimsins voru flestir hverjir sammála um að flíkur með svokallaðri málmáferð væru nauðsynlegar í fataskápinn fyrir sumarið. Hið fornfræga tískuhús Burberry setti tóninn er hinn klassíski rykf...
Meira
"Ein af fyrirsætum Elite sem verða í hársýningu TIGI er Sigurlaug Birna Guðmundsdóttir en hún vann Elite Model Look 2012 hérlendis sem er ein stærsta fyrirsætuleit heims og fór hún áfram í lokakeppnin...
Meira
Glamúrmódelið Courtney Stodden er ekki þekkt fyrir að hylja líkama sinn með efnismiklum fötum. Hún toppaði sjálfa sig samt alveg þegar hún fór í partí í Hollywood í vikunni.
Meira
Edda Óskarsdóttir situr fyrir í myndaþætti í franska tímaritinu Madame Figaro. Hún segir fyrirsætustarfið skemmtilegt en hyggur á læknisnám í framtíðinni.
Meira
Meðfylgjandi myndir voru teknar í dag þegar sænska verslunarkeðjan Indiska opnaði formlega verslun í Kringlunni en keðjan státar nú af 90 búðum viðs vegar um Norðurlönd. Eins og sjá má var vel mætt í ...
Meira
Berglind Häsler segir ekki allt þurfa að gerast innan póstnúmers 101. Hún skipuleggur flóamarkað sem fer fram í húsnæði við Nýbýlaveg um helgina.
Meira
"Áhuginn á tísku kviknaði í menntaskóla en þá lagði maður jogginggallann á hilluna og fór að spá í hverju maður klæddist,“ segir Sindri Snær Jensson, tískubloggari og knattspyrnumarkmaður, sem h...
Meira
Meðfylgjandi myndir voru teknar í svokölluðum "Champagne Brunch" í formlegri opnun á nýrri Freebird verslun að Laugavegi 46 í hádeginu í dag. Eins og sjá má á myndunum voru gestir áberandi glaðir í ko...
Meira
Útskriftarnemar í fatahönnun við Listaháskóla Íslands sýndu útskriftarverkefni sín í Hafnarhúsinu á föstudagskvöldið. Sýningin var vel sótt og almenn hrifning ríkti. Daníel Rúnarsson, ljósmyndari Frét...
Meira
Tímaritið Vanity Fair er búið að taka saman lista yfir best klæddu óléttu konurnar í heiminum. Það kemur lítið á óvart að hertogynjan af Cambridge, Kate Middleton, trónir á toppnum.
Meira
Stuttbuxur sáust víða á sýningarpöllum þegar vorlínur þessa árs voru kynntar. Stuttbuxur eiga sérlega vel við íslenska veðráttu því þannig má fá sól á hvíta fótleggi án þess að hafa áhyggjur af gáskaf...
Meira