Glamour

Gwyneth Paltrow prýðir forsíðu InStyle

Ritstjórn skrifar
Gwyneth flott forsíðufyrirsæta.
Gwyneth flott forsíðufyrirsæta. Mynd/InStyle
Engin önnur en Gwyneth Paltrow situr fyrir á forsíðu InStyle fyrir febrúar mánuð. Leikkonan hefur átt viðburðarrík tvö ár að baki en ásamt því að skilja við eiginmann sinn, Chris Martin, þá hefur hún einnig verið að gera góða hluti með fyrirtækinu sínu GOOP.

Paltrow opnar sig um skilnaðinn, viðskiptin, leiklistarheiminn og börnin í opinskáu viðtali sem eflaust margir munu bíða spenntir eftir að lesa. Blaðið fer þó ekki í sölu fyrr en í byrjun janúar. 






×