Glamour

Gwyneth Paltrow guðdómleg í Gucci

Ritstjórn skrifar
Gwyneth hefur sjaldan litið jafn vel út.
Gwyneth hefur sjaldan litið jafn vel út. Myndir/Getty
Gwyneth Paltrow tók á móti heiðursverðlaunum Elle Spain í Madríd í afar fallegum Gucci kjól. Kjóllinn sjálfur er ekki hefðbundið val fyrir Gwyneth en áhættan sem hún tók heppnaðist afar vel. 

Heildarútlitið var vægast sagt fullkomið en skartgripirnir voru frá Tous, en hún er talskona merkisins. Paltrow bar af á rauða dreglinum, ekki aðeins fyrir kjólinn heldur líka fyrir heilbrigt útlit.





Öðruvísi en fallegur kjóll sem fer Gwyneth afar vel.





×