Glamour

Gwen Stefani er nýtt andlit Revlon

Ritstjórn skrifar
Úr herferð Gwen fyrir Revlon.
Úr herferð Gwen fyrir Revlon. Mynd/Instagram
Þeir sem hafa velt því fyrir sér hvers vegna rauði varaliturinn á Gwen Stefani er alltaf fullkominn þá er það vegna þess að hún var áður förðunarfræðingur þar til hún snéri sér alfarið að tónlistinni. Þess vegna er upplagt að hún skrifi undir samning við snyrtivörufyrirtæki á borð við Revlon. 

Fréttirnar voru tilkynntar á instagram síðu Revlon í dag. Gwen bætist því í hóp kjarnakvenna á borð við Ciara, Halle Berry og Olivia Wilde.






×