Öllum borgarfulltrúum er boðið á tónleika GusGus sem fram fara á Nasa í kvöld. Eins og fram hefur komið stendur til að loka staðnum því hugmyndir eru uppi um að rífa húsið sem veitingastaðurinn er rekinn í.
Í tölvupósti sem GusGus sendi borgarfulltrúum segir að með brotthvarfi Nasa verði rofið stórt skarð í annars ágætis tónlistarflóru Reykvíkinga. „Þetta skarð verður erfitt að fylla og fyrir marga tónlistarmenn verður brotthvarfið þungbært, bæði tilfinningalega og rekstrarafkomulega. Okkur finnst mikilvægt að borgaryfirvöld séu að fullu meðvituð um hverju borgarbúar eru að glata á þessum tímamótun," segir í tölvupóstinum til borgarfulltrúa.
Jón Gnarr borgarstjóri mun ekki mæta á tónleikana, samkvæmt upplýsingum frá S. Birni Blöndal, aðstoðarmanni hans. Vísir reyndi að ná í Dag B. Eggertsson við vinnslu þessarar fréttar en hann var vant viðlátinn.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Heimir Björn Janusarson, umsjónarmaður Hólavallakirkjugarðs, segir að þó nokkuð sé um að fólk láti setja duftker í garðinn mætti vera enn meira gert af því.
Meira
Kennslanefnd sem hefur það hlutverk að bera kennsl á óþekkt lík eða líkamsleifar sem finnast stefnir að því að koma saman sem fyrst, jafnvel á morgun til að gera frumrannsókn á líkinu sem fannst sjóre...
Meira
Fjórir ferðamenn sem komust í sjálfheldu í Fjallsárlóni fyrr í dag munu hafa verið rólegir, enda voru þau með borð og stóla á ísjakanum og gerðu sér ekki grein fyrir hættunni.
Meira
Tún bænda í Svarfaðardal og Skíðadal eru enn hulin snjó og halda þarf öllu lambfé heim við hús. Heyforði er naumur og dæmi eru um að bændur hafi þurft að kaupa hey fyrir tvær milljónir króna það sem a...
Meira
Kostnaður við snjómokstur hjá Dalvíkurbyggð í vetur er þrefalt meiri en í meðalári. Gríðarlegt fannfergi hefur verið á Norðurlandi í allan vetur og eru dæmi um að hús á Dalvík séu enn á kafi í snjó.
Meira
Skipting ráðuneyta er farin að taka á sig mynd í stjórnarmyndunarviðræðum Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks. Sjálfstæðisflokkurinn fær fjármála- og efnahagsráðuneyti og atvinnuvegaráðuneyti í nýrri rík...
Meira
Það er fréttaþulan skelegga á RÚV, María Sigrún Hilmarsdóttir, sem les upp stigin fyrir Íslands hönd þegar allir keppendurnir í Eurovision keppninni hafa lokið við að flytja framlög sín. Alls eru það ...
Meira
Eyþór Ingi Gunnlaugsson, fulltrúi Íslands, söng framlag Íslands í Eurovision, "Ég á líf“ óaðfinnanlega. Hann hlaut mikið lof og klapp í tónlistarhöllinni eftir að hann lauk flutningi sínum. Eyþó...
Meira
Stefnum vegna meiðyrða á netinu hefur fjölgað undanfarin ár segir Hæstaréttarlögmaður og sífellt fleiri leita réttar síns vegna meiðandi ummæla á veraldarvefnum.
Meira
Risavaxin verkefni bíða Bjarna Benediktssonar, sem sagður er verða nýr fjármála- og efnahagsráðherra í nýrri ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks- og Framsóknarflokks.
Meira
5.250 tíst voru send út á fimmtudaginn undir merkinu #12stig, en til stendur að slá íslandsmet í tísti í tengslum við söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva nú í kvöld.
Meira