Lífið

Guru Datum slær í gegn á netinu

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Úr myndbandinu.
Úr myndbandinu.
Óútskýrt og stórundarlegt myndband hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum síðustu daga af manni sem kallar sig Guru Pacino Datum. Í myndbandinu, sem minnir einna helst á atriði úr gamanþáttaröðinni The Office, sést Datum á kynningarfundi með fólki um óendanleikann.

Umræður hafa skapast um myndbandið á síðum á borð við Bland.is þar sem fólk spyr hvað sé í gangi. Forvitnin greip blaðamann Vísis sem reyndi grafast fyrir um málið en lítil sem engin svör hafa fengist.

Á Facebook-síðu Guru Pacino Datum er vísað á vefsíðuna oendanleiki2015.org. Lénið er skráð á Guru Pacino Datum sem, samkvæmt skráningunni, er staðsettur í indversku borginni Varanasi.

Símanúmerið sem gefið er upp með skráningunni er ótengt. Engin svör hafa borist við fyrirspurn Vísis sem send var í tölvupósti. Þegar reynt var að senda skráningu á námskeið Guru Pacino Datum, sem fram á að fara í dag, kom í ljós að það netfang er ekki til.

Í uppfærslu á Facebook-síðu Guru Datum er námskeiðið sagt vera haldið í skrifstofuhúsnæði fyrir neðan Dáleiðsluskóla Íslands. Í samtali við Vísi segjast forsvarsmenn skólans ekki vita neitt um þennan mann og þvertaka fyrir að nokkuð námskeið verði í kvöld í húsakynnum skólans.

Þrátt fyrir að fá svör eða útskýringar hafi fengist er myndbandið allt hið athyglisverðasta en það má sjá hér fyrir neðan:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×