Innlent

Gúrkutíð í veðrinu

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Sólin mun helst láta sjá sig á Austurlandi í vikunni.
Sólin mun helst láta sjá sig á Austurlandi í vikunni. Vísir/Ernir
Veður dagsins verður fremur tilkomulítið og raunar er því lýst í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar sem svo að það sé gúrkutíð í veðrinu.

Fremur hæg vestanátt verður og mun sól helst láta sjá sig austanlands. Ekki verður sérstaklega hlýtt, hámarkshiti í kringum 16 til 18 stig. Engin markverð úrkoma á landinu og svo segir að endurnýta megi þessa spá nánast næstu daga.

Til samanburðar rifjar veðurfræðingur upp að þannn 26. júní árið 1930 var kraphríð sums staðar vestanlands. Sama dag árið 1972 skemmdi haglél garðagróður á Mýri í Bárðardal.

„Atburðaskráin sýnir okkur hversu duttlungafullt veður á Íslandi getur verið, jafnt um sumar sem að vetri.

Ekki var nú meiningin að romsa þessum staðreyndum upp til að undirbúa jarðveginn fyrir válynd tíðindi af veðri, því fer fjarri. Veður dagsins verður fremur tilkomulítið,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

„Já, það er gúrkutíð í veðrinu, a.m.k. í samanburði við atburðaskrá Veðurstofu Íslands.“

Veðurhorfur á landinu:

Suðvestlæg eða breytileg átt 3-8 m/s, en 8-13 SA-lands síðdegis og einnig á Ströndum í kvöld. Bjart með köflum á A-verðu landinu, en líkur á síðdegisskúrum. Skýjað V-til og sums staðar smáskúrir. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast A-lands.

Veðurhorfur á landinu næstu dag:

Á miðvikudag og fimmtudag:

Suðvestlæg eða breytileg átt, víða 3-8 m/s. Stöku skúrir, en bjart með köflum A-til. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast á A-verðu landinu.

Á föstudag:

Sunnan 3-8 og skúrir á víð og dreif, einkum síðdegis. Hiti yfirleitt 10 til 15 stig. Vaxandi suðaustanátt og fer að rigna SV-lands um kvöldið.

Á laugardag:

Austanátt og rigning, einkum SA-lands. Hiti breytist lítið.

Á sunnudag:

Austlæg eða breytileg átt og væta í flestum landshlutum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×