Tónlist

Guns N Roses seldi milljón tónleikamiða á sólarhring

Anton Egilsson skrifar
Guns N' Roses á Coachella tónlistarhátíðinni í sumar á þessu ári.
Guns N' Roses á Coachella tónlistarhátíðinni í sumar á þessu ári.
Bandaríska rokkhljómsveitin Guns N‘ Roses seldi eina milljón tónleikamiða á einum sólarhring. Hljómsveitin mun spila á hátt í 50 tónleikum víðs vegar um heim á næsta ári en þeir eru hluti af tónleikaferðalagi þeirra „Not in This Lifetime“ sem hófst í apríl á þessu ári. UPI greinir frá.

Mikil aðsókn hefur verið á tónleika í tónleikaferðalaginu enda er þetta í fyrsta skipti frá árinu 1993 sem að upprunulega meðlimir hljómsveitarinnar, söngvarinn Axl Rose, gítarleikarinn Slash og bassaleikarinn Duff McKagan spila saman undir formerkjum sveitarinnar.

Guns N' Roses var stofnuð í Los Angeles árið 1985 og gaf út sína fyrstu plötu árið 1987, plötuna Appetite for Destruction. Hljómsveitin var gríðarlega vinsæl á níunda og tíunda áratug síðustu aldar.

Slash skildi svo við hljómsveitina árið 1996 og það gerði Duff McKagan sömuleiðis ári síðar. Axl Rose hefur haldið áfram að spila undir formerkjum sveitarinnar með nýjum meðlimum en hún hefur aldrei náð sama flugi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×