Viðskipti innlent

Gunnlaugur Hjörtur ráðinn framkvæmdastjóri Heilbrigðissviðs Icepharma

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Gunnlaugur Hjörtur Gunnlaugsson
Gunnlaugur Hjörtur Gunnlaugsson Mynd/Aðsend
Icepharma hefur ráðið Gunnlaug Hjört Gunnlaugsson sem framkvæmdastjóra Heilbrigðissviðs Icepharma frá 1. október næstkomandi. Hjörtur hefur starfað hjá Icepharma undanfarin sex ár, fyrst sem sérfræðingur í lækningatækjum. Árið 2013 varð hann deildarstjóri tækja- og þjónustudeildar og árið 2015 tók hann við sem deildarstjóri skurðvörudeildar.

Hjörtur er 41 árs gamall og með B.Sc. próf í rafmagnstæknifræði og M.Sc. próf í heilbrigðisverkfræði frá Háskólanum í Árósum.

Í tilkynningu frá Icepharma segir að Heilbrigðissvið Icepharma starfi með fjölda birgja um heim allan og sé leiðandi í ráðgjöf, sölu og þjónustu á tækjum og rekstrarvöru á íslenskum heilbrigðismarkaði. Helstu viðskiptavinir sviðsins eru sjúkrahús, heilsugæslur, læknastofur og hjúkrunarheimili um land allt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×