Íslenski boltinn

Gunnhildur færir sig um set

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gunnhildur Yrsa er kominn til Grand Bodo.
Gunnhildur Yrsa er kominn til Grand Bodo. Vísir/Daníel
Landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir hefur fært sig um set í norsku úrvalsdeildinni, en hún er gengin í raðir Grand Bodo frá Arnar Björnar. Mbl.is greinir frá þessu.

Gunnhildur, sem lék með Stjörnunni hér á landi, kom við sögu í sjö leikjum hjá Arna Björnar. Hún var í byrjunarliðinu í einum leik og kom inn á sem varamaður í hinum sex.

Bodo er í 12. og neðsta sæti norsku úrvalsdeildarinnar með aðeins eitt stig eftir 11 leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×