Sport

Gunnar verður heimsmeistari

Henry Birgir Gunnarsson í Stokkhólmi skrifar
Garry Cook ræður öllu í UFC í Evrópu.
Garry Cook ræður öllu í UFC í Evrópu. Fréttablaðið/Björn SIgurðsson
„Gunnar hefur verið að berjast lengi og við höldum að Gunnar eigi eftir að verða heimsmeistari einn daginn,“ segir Garry Cook, yfirmaður UFC í Evrópu, Asíu og Afríku, í samtali við Fréttablaðið.

Margir muna kannski eftir honum úr enska boltanum þar sem hann var áður stjórnarformaður Manchester City sem leikur í úrvalsdeildinni.

„Gunnar er sérstakur einstaklingur og berst eins og hann lifir lífinu. Hann byrjar rólega og maður veit aldrei hvað gerist síðan. Tæknilega er hann einn besti bardagamaður heims,“ segir Garry Cook sem heldur mikið upp á okkar mann, Gunnar. „Ég vildi að Gunnar myndi klífa styrkleikalistann hraðar en hann er á réttri leið. Hann er frábær strákur sem leggur mikið á sig.“

UFC hefur áhuga á því að koma til Íslands og halda hér alvöru bardagakvöld ef íþróttin verður leyfð hér á landi. „Við viljum að bestu mennirnir fái að keppa í sínu landi. Bestu kapparnir hrífa þjóðirnar með sér og vilja keppa heima hjá sér. Það væri auðvitað frábært ef Gunnar gæti keppt um titil í Reykjavík. Við skoðum þetta að sjálfsögðu ef íþróttin verður leyfð á Íslandi.“

MMA

Tengdar fréttir

Ótrúlegur ferill Gunnars Nelson

Augu Íslands verða á Stokkhólmi annað kvöld þar sem okkar maður stígur í búrið og mætir Bandaríkjamanninum Rick Story.

Margir verða bara ljótari með árunum

Þjálfari Gunnars Nelson, John Kavanagh, er gríðarlega ánægður með lærling sinn og spáir því að Gunnar muni rota Rick Story í kvöld. Kavanagh segir Gunnar geta gert tilkall til titilbardaga í náinni framtíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×