Sport

Gunnar valdi bestu „staðreyndina“ um sig

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gunnari fannst þessi best.
Gunnari fannst þessi best. mynd/ufcuk
Undanfarnar vikur hafa netverjar leikið sér með kassmerkið #GunnarFacts á Twitter þar sem ótrúlegum „staðreyndum“ um Gunnar Nelson er varpað fram.

Þetta er allt saman vitaskuld algjört bull, en margar staðreyndirnar eru afar fyndnar. UFC í Bretlandi hefur staðið fyrir keppni á bestu staðreyndinni um Gunnar, en hann valdi hana sjálfur.

„Gunnar keyrði móður sína heim af fæðingardeildinni eftir sína eigin fæðingu,“ var sú sem Gunnari fannst best.

Sá heppni sem bjó til þessa staðreynd fékk tvo miða á bardagakvöldið í Globen á laugardaginn þar sem Gunnar Nelson berst við Rick Story, auk áritaða hanska frá Gunnari.

Bardagi Gunnars Nelson verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport á laugardagskvöldið. Fáðu þér áskrift í síma 512-5100 eða smelltu hér.

MMA

Tengdar fréttir

Dreymir ekki um Vegas

Gunnar Nelson segir að það séu að verða valdaskipti í UFC-heiminum. Ný kynslóð bardagakappa, betri en þeir sem fyrir eru, séu að taka yfir íþróttina.

Story er svefnlaus í Stokkhólmi

Maður hefur séð hressari menn en Bandaríkjamanninn Rick Story á fjölmiðladeginum í Stokkhólmi í gær. Það átti sér þó skýringar.

Story: Ætla að láta reyna á þol Gunnars

Bandaríkjamaðurinn Rick Story er fullviss um að hann muni gera Gunnari Nelson lífið leitt er þeir mætast í búrinu í Stokkhólmi á laugardag.

Leiðin að búrinu: Gunnar Nelson vs. Rick Story

Aðeins fimm dagar eru í UFC bardaga Gunnars Nelson í Stokkhólmi. Gunnar mætir Bandaríkjamanninum Rick Story í aðalbardaga kvöldsins í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×