Sport

Gunnar upp um fjögur sæti á styrkleikalista UFC

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Það verður spennandi að sjá hvaða mótherja Gunnar fær næst.
Það verður spennandi að sjá hvaða mótherja Gunnar fær næst. vísir/getty
Gunnar Nelson er kominn upp í 11. sætið á styrkleika UFC í veltivigt.

Gunnar vann góðan sigur á Brandon Thatch í UFC 189 á laugardaginn og sá sigur skilar honum upp um fjögur sæti á styrkleikalistanum.

Félagi Gunnars, Írinn litríki Conor McGregor, er kominn í efsta sætið á styrkleikalistanum í fjaðurvigt en hann bar sigurorð af Chad Mendes í UFC 189 á laugardaginn.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×