Sport

Gunnar tekur ábyrgð á trénu sem var fellt

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gunnar Nelson og tréð sem var fellt við Laugarnesveg 3. Í baksýn er Kleifarvegur 6, heimili Gunnars.
Gunnar Nelson og tréð sem var fellt við Laugarnesveg 3. Í baksýn er Kleifarvegur 6, heimili Gunnars. Vísir/Ernir
Gunnar Nelson segist taka ábyrgð á trénu sem var fellt í garði nágranna síns í síðasta mánuði. Þetta sagði hann í viðtali við Ariel Helwani, einn þekktasta MMA-bardagaíþróttafréttamann Bandaríkjanna.

Gunnar var í viðtali við Helwani í tilefni af bardaga sínum við Albert Tumenov á UFC-bardagakvöldi í Rotterdam í Hollandi á sunnudagskvöld. Viðtalið hófst á spjalli þeirra um umrætt tré en málið hefur vakið mikla athygli í íslenskum fjölmiðlum eftir að Fréttablaðið fjallaði fyrst um það.

„Ég verð að taka ábyrgð á trénu. Ég lét fella það,“ sagði Gunnar í viðtalinu. „Það skondna er að ég vann eitt sinn fyrir manninn sem felldi tréð,“ sagði Gunnar sem samkvæmt því vann sjálfur við það að fella tré á einum tímapunkti.

Hann segir að það sé eðlilegt að fella tré sem þetta sem að sögn Haraldar, föður Gunnars, var aspartré.

Sjá einnig: Gunnar Nelson kærður fyrir að fella tré nágranna síns

„Ræturnar eyðileggja lagnir og skemma garða. Þetta voru þrjú tré - öll af sömu tegund. Tvö þeirra voru í mínum garði og eitt svo rétt innan lóðarmarka hans.“

„Ég hringdi í hann fyrir fjórum mánuðum og það var minn skilningur að það væri í lagi að fella tréð ef ég myndi borga fyrir það. Að það yrði gert honum að kostnaðarlausu.“

„En svo felldi ég það og hann fór í blöðin. Ég held að hann muni kæra. Ég veit það ekki, þetta er svolítið skrýtið.“

Gunnar er nú staddur í Dublin á Írlandi að æfa sig fyrir bardagann. „Ég þurfti að flýja Ísland vegna þessa máls,“ sagði hann í gríni.

MMA

Tengdar fréttir

Gunnar Nelson kærður fyrir að fella tré nágranna síns

Stórt tré var fellt í garðinum á Laugarásvegi í óþökk eigenda. Gunnar Nelson og annar íbúðareigandi eru sagðir standa fyrir verkinu. Faðir Gunnars segir málið byggt á misskilningi og að Gunnar vilji síst af öllu vilja eiga í nágrannaerjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×