Handbolti

Gunnar Steinn og félagar réðu ekki við Ljónin

Alexander Petersson.
Alexander Petersson. vísir/getty
Alexander Petersson, Stefán Rafn Sigurmannsson og félagar í Rhein-Neckar Löwen eru enn ósigraðir á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta.

Löwen sótti lið Gunnars Steins Jónssonar, Gummersbach, heim í kvöld, og vann góðan sigur, 27-32.

Alexander skoraði fjögur mörk mörk fyrir Löwen en Stefán Rafn kom ekki við sögu í leiknum.

Gunnar Steinn skoraði eitt mark fyrir Gummersbach sem er í áttunda sæti deildarinnar.

Balingen gerði sér síðan lítið fyrir og lagði Hamburg, 22-21.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×