Handbolti

Gunnar Steinn kallaður í landsliðshópinn

Gunnar Steinn á EM.
Gunnar Steinn á EM. vísir/daníel
Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari Íslands, hefur þurft að gera breytingu á leikmannahópi sínum fyrir komandi leiki í undankeppni EM.

Aron Pálmarsson, leikmaður Kiel, er meiddur og getur ekki spilað næstu vikur. Í hans stað hefur verið valinn Gunnar Steinn Jónsson, leikmaður Gummersbach.

Gunnar Steinn er á sínu fyrsta ári með Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni. Hann átti mjög góða innkomu í landsliðið á EM í janúar.

Ísland leikur gegn Ísrael og Svartfjallalandi um mánaðarmótin.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×