Handbolti

Gunnar Steinn í hópinn | Aron ekki á heimleið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Doha skrifar
Vísir/Eva Björk
HSÍ hefur tilkynnt að Gunnar Steinn Jónsson taki sæti Arons Pálmarssonar í leikmannahópi íslenska landsliðsins í handbolta á HM í Katar. Aron verður þó áfram með strákunum okkar í Katar.

Aron fékk höfuðhögg í leiknum gegn Tékklandi á fimmtudag og var hann með einkenni heilahristings eftir leikinn. Í gærmorgun var svo tilkynnt að Aron myndi ekki spila með Íslandi gegn Egyptalandi í dag.

Gunnar Steinn hefur verið með íslenska hópnum frá upphafi hér í Katar sem svokallaði sautjándi maður en aðeins má vera með sextán manna leikmannahóp skráðan til leiks í mótinu.

Liðunum er heimilt að gera tvær breytingar á meðan mótinu stendur og hefur nú Aron Kristjánsson notað eina. Ef Aron Pálmarsson verður aftur leikfær á næstu dögum, sem telst reyndar ólíklegt, verður því hægt að kalla hann inn í hópinn á ný.

Aron verður þó áfram með íslenska landsliðinu hér í Doha en Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, staðfesti það við Vísi í morgun.

Ísland mætir Egyptalandi klukkan 16.00 í dag og er afar ólíklegt að nokkuð annað en sigur muni duga strákunum til að komast áfram í 16-liða úrslit keppninnar. Leiknum verður lýst beint í Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins.


Tengdar fréttir

Gunnar: Þeir munu lemja á okkur

Aðstoðarlandsliðsþjálfarinn segir að strákarnir verði að vera tilbúnir fyrir stríð gegn Egyptalandi.

Verða að vinna Egypta eða treysta á Alsír

Möguleikar Íslands í að komast áfram í 16-liða úrslit HM í handbolta liggja í tveimur þáttum. Annaðhvort að vinna Egyptaland í dag eða treysta á að strákarnir nái betri úrslitum í sínum leik en Tékkar gera gegn Alsír.

Aron: Strákarnir þurfa að svara fyrir sig

Það er að duga eða drepast á HM. Yfirgnæfandi líkur eru á að allt annað en sigur á Egyptum muni senda strákana í hinn skelfilega Forsetabikar. "Hver og einn þurfti að líta í eigin barm,“ sagði landsliðsþjálfarinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×