Handbolti

Gunnar Steinn: Þurfum að koma þeim á óvart í vörninni

Arnar Björnsson skrifar
Gunnar Steinn Jónsson verður í stærra hlutverki nú þegar Aron Pálmarsson spilar ekki hér í Frakklandi. Hann segist til í slaginn.

„Mótið leggst vel í mig þetta er búið að vera leiðinlegt óvissuástand og nú er það komið á hreint að Aron spilar ekki og þá er tími fyrir okkur hina að taka stærra hlutverk. Ég fæ líklega að spreyta mig í miðju- og skyttustöðunni og bara tek því fagnandi.Ég er mjög spenntur og ánægður með að fá hlutverk og ætla að gera mitt besta,“ segir Gunnar Steinn ákveðinn en hvað með Spánverjana í kvöld?  

„Hann leggst bara vel í mig. Spánverjar eru með mjög sterkt lið en ég held að við eigum fína möguleika. Við förum í alla leiki til að vinna þá.“

Hvað þarf að gera til að fá hægstæð úrslit gegn Spánverjum?  

„Við þurfum að ná upp svona smá geðveiki í vörninni, kannski aðeins að koma þeim á óvart þar. Það var planið á móti Dönum en það klikkaði eiginlega þar. Við þurfum að finna þessa geðveiki sem oft er talað um það gæti komið þeim smá úr jafnvægi.“  

Eruð þið búnir að fara yfir varnarafbrigði sem gæti dugað gegn þeim?

„Já, við erum búnir að skoða Spánverjana vel og eigum að vera með þeirra leik á hreinu og það á ekkert að koma okkur á óvart þar.“

Ekki missa af neinu sem gerist á HM í Frakklandi. Vísir er með öflugt fréttateymi á mótinu sem færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir

HM-pistill: Hvaða lag mun drengjakór Geirs syngja?

Það er ótrúlega áhugavert heimsmeistaramót fram undan hjá strákunum okkar. Það er svo mikið af ungum mönnum í Metz núna að þetta eru eiginlega bara drengir. Því er vel við hæfi að tala um drengjakór Geirs eins og Gaupi byrjaði á svo skemmtilega.

Ólafur: Mæti með kassann úti í þetta verkefni

"Við ætlum að ná í úrslit of ná sem bestu út úr þessu móti. Það er spennandi leikur í kvöld við Spánverja og þar ætlum við að ná í tvö stig,“ segir Ólafur Guðmundsson sem verður í stóru hlutverki í kvöld í fjarveru Arons Pálmarssonar.

Gef ungu drengjunum tækifæri

Geir Sveinsson ætlar að nýta þetta tímamótamót hjá handboltalandsliðinu til þess að byggja upp til framtíðar. Kynslóðaskiptin verða nánast kláruð á HM í Frakklandi eftir ótrúleg ár hjá gullaldarlandsliði Íslands.

Ég gef frá mér orku á vellinum

Það bíða margir spenntir eftir því að sjá hinn magnaða Janus Daða Smárason á HM en hann sýndi í æfingaleikjum fyrir mótið að hann hefur ansi margt fram að færa. Leikmaðurinn er yfirvegaður og ætlar að nýta sín tækifæri vel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×