Sport

Gunnar skellti sér í bíó í gær

Henry Birgir Gunnarsson í Dublin skrifar
Gunnar mættur í bíóið í gær.
Gunnar mættur í bíóið í gær. mynd/halli nelson
Gunnar Nelson heldur í hefðirnar þegar kemur að undirbúningi fyrir bardaga og á því varð engin breyting í gær.

Gunnar og hans föruneyti fékk sér steik í gær og síðan var farið í bíó. Að þessu sinni var ákveðið að sjá apaplánetuna eða Dawn of the planet of the apes.

Kappinn hefur áður sagt að það sé gott að fara í bíó kvöldið fyrir bardaga. Dreifa huganum og hugsa um eitthvað annað  en bardagann í smátíma.

Hann hafði vonandi gaman af myndinni en nú er komið að alvörunni og ekkert annað en Zak Cummings er á dagskrá Gunnars í dag.

Þessi stórbardagi verður í beinni á Stöð 2 Sport og hefst útsending kl. 19:00.  Fáðu þér áskrift á www.365.is.

MMA

Tengdar fréttir

Hugsa að þakið fari af húsinu

Gunnar Nelson er öruggur og yfirvegaður að venju fyrir bardaga kvöldsins í Dyflinni. Hann fær mikinn stuðning frá heimamönnum og Gunnar segir góðar líkur á því að bardaginn klárist í fyrstu lotu.

Gunnar gríðarlega vinsæll í Írlandi

Gunnar Nelson er gríðarlega vinsæll í Dublin þar sem bardagakvöld UFC fer fram á laugaradaginn. Búast má við að aðdáendurnir í Dublin verði á bandi Gunnars þegar hann berst gegn Zak Cummings.

UFC Dublin: Áætlað að 350 milljónir manns horfi á laugardaginn

Blaðamannafundur UFC fyrir bardagana hér í Dublin var að ljúka þar sem allt snérist um Conor McGregor. Írinn skemmtilegi mætir Diego Brandao í síðasta bardaga kvöldsins en Gunnar Nelson og Zak Cummings eru í næstsíðasta bardaga kvöldsins.

Sjáðu vigtun Gunnars | Myndband

Gunnar Nelson mætir Bandaríkjamanninum Zak Cummings á UFC-kvöldi í Dyflinni í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport annað kvöld.

Gunnar: Má ekki vanvirða andstæðinginn

Gunnar Nelson var í viðtali hjá Valtýri Birni Valtýssyni í kvöldfréttum Stöðvar 2 þar sem hann ræddi bardagann á laugardaginn gegn Zak Cummings.

Upphitun fyrir bardaga Gunnars og Cummings | Myndband

Eftir viku mætast þeir Gunnar Nelson og Bandaríkjamaðurinn Zak Cummings á UFC bardagakvöldi í O2 Arena í Dublin. Bardaginn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og hefst útsendingin kl. 19:00.

UFC Dublin: Myndir úr vigtuninni

Eins og fram hefur komið náðu Gunnar Nelson og Zak Cummings tilsettri þyngd fyrir bardagann annað kvöld. Báðir vigtuðu þeir sig inn í kringum 77 kg fyrr í dag en myndir úr vigtuninni má sjá hér.

Bakvið tjöldin fyrir síðasta bardaga Gunnars

Gunnar Nelson berst sinn fjórða UFC bardaga á laugardaginn þegar hann mætir Bandaríkjamanninum Zak Cummings. Vísir mun fylgja Gunnari vel eftir í aðdraganda bardagans líkt og síðast.

Gunnar með sérhannaðan góm á laugardaginn

Jón Viðar Arnþórsson, formaður Mjölnis, birti í dag mynd af gómnum sem Gunnar Nelson mun nota í bardagnum á laugardaginn en gómurinn er sérhannaður fyrir Gunnar.

Gunnar: Yrði gaman að keppa í Las Vegas

Bardagakappinn var í viðtali í kvöldfréttum Stöðvar 2 þar sem hann útilokaði ekki að næsti bardagi hans færi fram í sjálfri borg syndanna, Las Vegas í Bandaríkjunum.

Uppselt á vigtunina í dag

Áhuginn fyrir UFC-kvöldinu í Dublin á morgun er með hreinum ólíkindum. Í dag verða kapparnir vigtaðir og í fyrsta sinn var selt inn á viðburðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×