Sport

Gunnar segir hlutina nákvæmlega eins og þeir eru | Myndband af blaðamannafundi

Andartaki eftir að þessi mynd var tekin lá Thatch í gólfi og Gunnar batt enda á bardagann.
Andartaki eftir að þessi mynd var tekin lá Thatch í gólfi og Gunnar batt enda á bardagann. vísir/getty
Eins og flestum ætti að vera kunnugt um vann Gunnar Nelson bara sinn í UFC síðustu nótt þegar hann lagði Brandon Thatch í fyrstu lotu.

Í kjölfar bardagakvöldsins var haldinn blaðamannafundur þar sem Gunnar sat m.a. fyrir svörum. Gunnar er þekktur fyrir að vera maður fárra orða þegar kemur að svörum á blaðamannafundum og viðtölum.

Hér fyrir neðan má sjá skemmtileg viðbrögð hjá Dana White, forseta UFC, við stuttum en hnitmiðuðum svörum Gunnars á blaðamannafundinum.

Þar talar White um hve einstakur Gunnar er og hvað svör hans í viðtölum geri hann heillandi.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×