Sport

Gunnar Nelson upp um eitt sæti á styrkleikalistanum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gunnar Nelson færist upp styrkleikalistann.
Gunnar Nelson færist upp styrkleikalistann. vísir/getty
Gunnar Nelson færðist upp um eitt sæti á styrkleikalista millivigtar UFC-bardagasambandsins eftir sigurinn á Zak Cummings á Írlandi um síðustu helgi.

Gunnar er nú í tólfta sæti sæti, en eina breytingin á listanum er að hann hefur sætaskipti við Bandaríkjamanninn Mike Pyle sem Gunnar átti að berjast við í maí á síðasta ári. Okkar maður þurfti að hætta við þann bardaga vegna meiðsla.

Margir héldu að Gunnar kæmist inn á topp tíu listann með því að vinna Zak Cummings en svo var ekki. Það eru 59 MMA-fréttamenn sem standa að listanum en meðaltal þeirra gildir.

Þegar litið er yfir kosningu hvers og eins má sjá að margir fréttamennirnir hafa Gunnar í tíunda sætinu og jafnvel ofar, en sumir eru ekki einu sinni með Gunnar á meðal fimmtán bestu. Taka skal fram að styrkleikalistinn er nokkuð umdeildur.

Mike Pyle, sem Gunnar hefur sætaskipti við, gæti orðið næsti mótherji hans, en Guttormur Árni Ársælsson, fréttamaður á MMA-frétta.is, ritar í dag fróðlega grein um hver verði mögulega næsti mótherji Gunnars.

Johny Hendricks er ríkjandi meistari í millivigtarflokknum, en í fyrsta sæti styrkleikalistans er Robbie Lawler og á eftir honum kemur Rory McDonald. Lawler berst við Matt Brown á laugardaginn í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport um hvor færi tækifæri til að hirða beltið af Hendricks.

MMA

Tengdar fréttir

Gunnar: Suma þarf að brjóta niður rólega

Það var frekar fyndið að sitja blaðamannafund UFC í kvöld. Níu bardagamenn mættu á fundinn. Þeir voru margir illa farnir. Með glóðaraugu, mar og skurði. Gunnar Nelson var aftur á móti rétt sveittur. Líkt og hann hefði skotist út að skokka.

Gunnar: Maður beið eftir að þakið myndi fljúga af

Valtýr Björn Valtýsson mætti á Partývaktina á Bylgjunni í kvöld ásamt Brynjari Hafsteinsyni frá MMA-Fréttum og lýsti sigri Gunnars Nelson á Zak Cummings í UFC í kvöld og hringdi í kappann sem var að vonum kátur.

Gunnar segir aldrei rassgat en samt elska hann allir

Æðsti prestur UFC-safnaðarins, Dana White, er mættur til Dublin og var viðstaddur vigtunina í gær. Í kjölfarið hélt hann líklega lengsta blaðamannafund allra tíma. Þrátt fyrir það var fundurinn þrælskemmtilegur.

Forseti UFC vill að Gunnar fari sér hægt

Dana White, forseti UFC, sagði fyrir helgi að hann væri ekki viss um hvort það væri kominn tími á að Gunnar Nelson myndi berjast við menn á topp tíu í sínum þyngdarflokki.

Gunnar: Yrði gaman að keppa í Las Vegas

Bardagakappinn var í viðtali í kvöldfréttum Stöðvar 2 þar sem hann útilokaði ekki að næsti bardagi hans færi fram í sjálfri borg syndanna, Las Vegas í Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×